Báran stéttarfélag

2022

Báran, stéttarfélag var stofnað 25. júní 2002. Með því voru sameinuð þrjú félög á svæðinu. Verkalýðsfélagið Þór Selfossi, Verkalýðs- og sjómannafélagið Bjarmi á Stokkseyri og Verkalýðs- og sjómannafélagið Báran á Eyrarbakka. Áður hafði bílstjórafélagið Ökuþór sameinast Verkalýðsfélaginu Þór. Báran, stéttarfélag samanstendur af fjórum félögum af svæðinu. Við sameininguna varð félagið stærsta stéttarfélagið á Suðurlandi og þótti vel við hæfi að nafn félagsins yrði Báran, stéttarfélag.

Sagan

Báran á Eyrarbakka var stofnað í febrúar 1903 og var með fyrstu stéttarfélögunum á landinu og elsta félagið sem átti aðild að þessari sameiningu. Fyrsti formaður hins nýja félags var Kristján Jónsson. Félagssvæðið er Árnessýsla (Sveitarfélagið Árborg, Flóahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð og Grímsnes og Grafningshreppur) utan Ölfuss. Félagið er eitt af 19 félögum innan Starfsgreinasambands Íslands, er aðili að Sjómannasambandi Íslands og eitt af aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands. Félagsmenn starfa í ýmsum starfsstéttum matvælaiðnaði, byggingariðnaði, umönnun, ferðaþjónustu, iðnaðarframleiðslu og svo framvegis. Í takti við uppsveifluna í atvinnulífinu á síðustu árum og fjölgun erlends vinnuafls hefur Báran vaxið og dafnað undanfarin ár með tilkomu ferðaþjónustunnar. Kynjahlutföll félagsins eru nokkuð jöfn en það var ekki fyrr en árið 1958 sem samþykkt var að konur gætu gengið í félagið. Síðan hafa þrjár konur gegnt formennsku í félaginu. Ingibjörg Sigtryggsdóttir var fyrsta konan sem gegndi formennsku í félaginu. Hún var kosin formaður Verkalýðsfélagsins Þórs 1982.

Hlutverk

Helsta hlutverk félagsins er að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum félagsmanna. Semja um kaup og kjör, bættan aðbúnað við vinnu og gæta þess að ekki sé gengið á rétt félagsmanna. Vinna að fræðslu, menningarmálum og sameina alla starfandi launamenn á svæðinu. Daglegur þáttur í starfsemi félagsins er m.a. túlkun og gerð kjarasamninga, útreikningur launakrafna, útleiga orlofshúsa, afgreiðsla styrkja og dagpeninga og skólakynningar. Vinnustaðaeftirlit er stór þáttur í starfsemi félagsins. Lög um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum tóku gildi í maí 2010. Félagið hefur frá upphafi haldið úti vinnustaðaeftirlitsfulltrúum í samvinnu við önnur félög. Félagið hefur einnig verið virkt með ýmsum öðrum félögum í að þróa starfsemi áfram sem hefur falist í auknu samstarfi við ýmsa aðila eins og Vinnueftirlitið, Vinnumálastofnun og Ríkisskattstjóra. Með tímanum hefur verið aukin áhersla á að fræða starfsmenn á vinnustöðum um vinnumarkaðinn og oftar en ekki að liðsinna félagsmönnum í hinum ýmsu málum. Fulltrúar félagsins fara á vinnustaði, fylgja eftir kjarasamningsbundnum réttinum, fara yfir réttindi, skyldur og starfsemi félaganna. Er þetta nauðsynlegur þáttur í starfsemi félaganna og góð leið til þess að nálgast þá sem eru af erlendu bergi brotnir og þekkja lítið til kjarasamninga á íslenskum vinnumarkaði.

Aðsetur

Skrifstofa félagsins er að Austurvegi 56 Selfossi. Þrjú stéttarfélög reka og eiga saman Þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna á Suðurlandi (ÞSS) ( VR, FIT og Báran, stéttarfélag). Auk þess er Virk starfsendurhæfing, Festa lífeyrissjóður og Stjórnendafélag Suðurlands á sama stað. Félagið hefur lagt ríka áherslu á samvinnu við önnur stéttarfélög.

Sjóðir

Félagið er aðili að fjórum menntasjóðum: Landsmennt, Sveitamennt, Ríkismennt og Sjómennt. Allt eru þetta öflugir sjóðir sem reyna eftir fremsta megni að hvetja og styrkja félagsmenn til náms og námskeiða. Sjúkrasjóður félagsins greiðir annars vegar dagpeninga vegna veikinda og hins vegar styrki sem samræmist stefnu félagsins í forvörnum. Sjúkrasjóður félagsins er einnig með íbúð í Reykjavík í þeim tilgangi að aðstoða þá sem þurfa vegna veikinda að dvelja í Reykjavík. Orlofssjóður er með fjögur glæsileg orlofshús og eina orlofsíbúð. Markmiðið með orlofssjóði er að leigja félagsmönnum orlofshús á sanngjörnu verði, falleg og vel útbúin hús þar sem engu er tilsparað. Vinnudeilusjóður hefur það hlutverk að greiða út dagpeninga til félagsmanna sem verða tekjulausir í verkfalli. Trúnaðarmenn félagsins eru hryggjarstykkið í starfsemi félagsins og hafa lagt sig fram í baráttunni um brauðið. Trúnaðarmenn eru ósérhlífinn hópur sem er ómetanlegt í þeirri baráttu sem fram fer.

Stjórn

Stjórn félagsins skipa 7 aðalmenn og 3 til vara. Halldóra Sigr. Sveinsdóttir hefur gegnt formennsku í félaginu frá 2010. Örn Bragi Tryggvason er varaformaður. Meðstjórnendur eru Magnús Ragnar Magnússon, Ragnhildur Eiríksdóttir, Jón Þröstur Jóhannesson, Ingvar Garðarsson og Helga Flosadóttir. Til vara eru K. Hjalti Tómasson, Hildur Guðjónsdóttir og Sylwia Konieczna. Hjá félaginu starfa: Marta Kuc, K. Hjalti Tómasson, Gunnar K. Ólafsson, Þór Hreinsson og er formaður félagsins einnig starfandi á skrifstofu.

Ísland, atvinnuhættir og menning

© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd