Fjórum af 35 aðgerðum í fyrstu aðgerðaáætlun atvinnustefnu Íslands er lokið, 23 eru í vinnslu og átta í undirbúningi. Atvinnustefnuráð fagnar framgangi aðgerða en lýsir jafnframt áhyggjum af töfum á umbótum á regluverki lagareldis og rekstrarumhverfi gagnavera.