Um okkur

Ritverkið ÍSLAND, atvinnuhættir og menning geymir á einum stað upplýsingar um fjölþætt efni og veitir einstaka yfirsýn yfir atvinnulíf, sögu og menningu þjóðarinnar. Útgáfufyrirtækið SagaZ ehf. hefur nú gefið út í fjórða sinn verkið ÍSLAND, atvinnuhættir og menning.2020 útgáfa ritsins samanstendur af 6 bókum og í þeim er að finna yfir tíu þúsund myndir.

Verkið hefur komið út með tíu ára millibili, fyrst 1990, 2000, 2010 og svo núna 2020. Undirbúningur vegna prentútgáfunnar 2030 er hafinn en jafnframt er unnið að stafræna hluta verksins sem er áætlað að verði tekinn í notkun í lok árs 2023.

Ritverkið geymir upplýsingar um helstu fyrirtæki, félög, stofnanir og samtök í landinu. Í ritverkinu verða yfirlitsgreinar sérfróðra manna um sögu og menningu, land, þjóð og stjórnkerfi ríkis og sveitarfélaga, skóla og menntamál, heilbrigðismál o.fl.. Fjallað verður um alla helstu atvinnuvegi þjóðarinnar, ferðaþjónustu, sjávarútveg og vistkerfi hafsins, landbúnað, iðnað, orkumál, útflutning, umhverfisvernd, landgræðslu, skógrækt og samgöngur. Ennfremur leiklist og íslenska kvikmyndagerð. Einnig verða upplýsingar um stofnanir ríkis og sveitarfélaga auk greina um almenn atvinnufyrirtæki, félög, stofnanir og samtök flokkuð eftir atvinnugreinaflokkun.


Gert er ráð fyrir að mikill fjöldi fyrirtækja, félaga, stofnana og samtaka eigi aðild að ritverkinu, sem prýtt verður fjölda ljósmynda og bundið í vandað band í stóru broti. Aðilar verksins senda að jafnaði sjálfir inn texta og myndir. Má því segja að atvinnu- og menningarsaga þjóðarinnar sé skráð þar sem hún verður til.


Ritverkið ÍSLAND, atvinnuhættir og menning geymir á einum stað upplýsingar um fjölþætt efni og veitir einstaka yfirsýn yfir atvinnulíf, sögu og menningu þjóðarinnar. Ritverkið fer í bókasöfn, skóla, hundruði fyrirtækja, félaga, stofnana og samtaka sem nýtast menntastofnunum og öllum þeim sem þurfa að leita upplýsinga um atvinnuhætti og menningu líðandi stundar.

Bæjarlind 6
201 Kópavogi
570 7000
[email protected]
Upplýsingar
Sagaz.is
GB.is
Nordicnavi.is
Opnunartími
Mánudaga - Fimmtudaga:
09:00 - 17:00
Föstudaga:
09:00 - 16:00
Lokað í hádeginu á milli 12-13:00

Teymið okkar

Elín Björk Guðbrandsdóttir

Bókhald

Gretar Örn

Ljósmyndari

Linda Eyjólfsdóttir

Umbrot

Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir

Prófarkalestur

Valgeir Skagfjörð

Ritstjóri Ísland 2020, atvinnuhættir og menning

Avista

Vefsíðu- og hugbúnaðargerð
519-6280

Ísland, atvinnuhættir og menning

© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd