Á. Guðmundsson ehf.

2022

Á. Guðmundsson ehf. var stofnað í janúar 1956 af hjónunum Maríu Sigmundsdóttur og Ásgeiri J. Guðmundssyni, húsgagnasmíðameistara að Eiríksgötu 9, Reykjavík í 40 fm húsnæði. Árið 1962 flutti fyrirtækið í 220 fm eigið húsnæði að Auðbrekku 10 í Kópavogi sem síðar var stækkað í 1.100 fm á þremur hæðum. Árið 1977 flutti Á. Guðmundsson í 1.450 fm húsnæði á einni hæð að Skemmuvegi 4 í Kópavogi, sem seinna var stækkað um 330 fm árið 1993. Á vormánuðum árið 1999 flutti Á. Guðmundsson að Bæjarlind 8-10 í Kópavogi í glæsilegt verslunar- og iðnaðarhúsnæði. Húsið er alls 3.240 fm að stærð og er öll starfsemi Á. Guðmundsson þar enn í dag.

Framleiðslan
Frá upphafi hefur verið lög mikil áhersla á íslenska hönnun og framleiðslu. Í fyrstu voru framleiddar ýmsar gerðir húsgagna hjá Á. Guðmundsson. Árið 1973 hófst framleiðsla skrifstofuhúsgagna. Þá voru húsgögnin hönnuð af Helga Einarssyni og síðar af Þorkeli G. Guðmundssyni. Um 1985 hófst framleiðsala á SERÍA skrifstofu- og skólahúsgögnum sem Sturla Már Jónsson hannaði. Nú í dag framleiðir Á. Guðmundsson FLEX skrifstofuhúsgögnin sem Guðrún Margrét Ólafsdóttir og Oddgeir Þórðarson hanna. Auk þess framleiðir fyrirtækið SPUNA og SPROTA fundar- og kaffistofuhúsgögn ásamt SPEKI skólahúsgögnunum. Þessar þrjár línur eru hannaðar af Erlu Sólveigu Óskarsdóttur. Einnig framleiðir Á. Guðmundsson FAXA fundarstóla sem eru hannaðir af Pétri B. Lútherssyni. Íslensk hönnun og handverk hefur verið okkar einkenni frá upphafi. Undanfarin ár hefur Á. Guðmundsson verið leiðandi í hönnun og framleiðslu á íslenskum skrifstofu- og skólahúsgögnum.

Mannauður
Hjá Á. Guðmundsson starfa nú um 20 manns. Framkvæmdastjóri er Guðmundur Ásgeirsson, rekstrarstjóri er Sigmundur Ásgeirsson, fjármálastjóri er Ásgeir H. Guðmundsson og stjórnarformaður er Ásgeir J. Guðmundsson. Á. Guðmundsson er fjölskyldufyrirtæki sem byggir á sterkum grunni þar sem íslensk hönnun og handverk er í fyrirrúmi.

Vöruflokkar
Helstu vöruflokkar: Skrifstofuhúsgögn, skrifborðsstólar, stólar og sófar, skóla- og leik-skólahúsgögn og ýmis vara.
Við bjóðum úrval smávöru og fylgihluta sem auka þægindi og notagildi húsgagna okkar.
Þar á meðal má nefna kapallok og -festingar til að auðvelda snyrtilegan frágang á snúrum, bakka undir skjöl og ritföng, skjáfestingar, borðhillur, fótskemla og læsingar á skúffur og hurðir.
Á. Guðmundsson ehf. aðili að rammasamningi við Ríkiskaup.

Framúrskarandi fyrirtæki
Fyrirtækið hefur verið á meðal framúrskarandi fyritækja á lista Creditinfo árin 2013 til 2019.

Ísland, atvinnuhættir og menning

© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd