Samtök sveitarfélag og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, skammstafað SSNE, hefur það hlutverk að vera sterkur bakhjarl aðildarsveitarfélaga í sameiginlegum málum þeirra og stuðla að góðu mannlífi, lifandi menningarlífi og öflugri atvinnustarfsemi á starfssvæðinu. Starfssvæði samtakanna afmarkast af sveitarfélagamörkum allra sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, frá Siglufirði í vestri að Bakkafirði í austri.
Alls eru 12 sveitarfélög aðilar að samtökunum sem samanlagt telja rúmlega 30.000 íbúa.
Stjórnendur, starfsfólk og starfsstöðvar
Framkvæmdastjóri SSNE er Eyþór Björnsson en fastráðnir starfsmenn eru 9 í 8 stöðugildum, allt verkefnastjórar með aðsetur víðsvegar á starfssvæði samtakanna. Að auki eru tímabundið ráðnir verkefnastjórar í verkefnum brothættra byggða í landshlutanum. SSNE er með fjórar starfsstöðvar, á Húsavík, Akureyri, Raufarhöfn og Ólafsfirði. Auk þess er regluleg viðvera á Bakkafirði, í Grímsey, á Dalvík og Siglufirði.
Í stjórn SSNE sitja: Hilda Jana Gísladóttir, Akureyrarbæ, Jón Stefánsson, Eyjafjarðarsveit, Sigurður Þór Guðmundsson, Svalbarðshreppi, Þröstur Friðfinsson, Grýtubakkahreppi, Helga Helgadóttir, Fjallabyggð, Kristján Þór Magnússon, Norðurþingi og Eva Hrund Einarsdóttir, Akureyrarbæ.
Starfsemin
Markmið með starfsemi SSNE er að efla Norðurland eystra sem eftirsótt svæði til búsetu og atvinnu. Stofnun SSNE byggir á faglegum ávinningi, auknum slagkrafti, skilvirkari vinnu og auknum sóknarfærum til að auka fagþekkingu innan stoðstofnana á starfssvæði SSNE.
Leiðarljós í starfi SSNE er Sóknaráætlun Norðurlands eystra en sóknaráætlanir eru stefnumótandi áætlanir sem taka til starfssvæða landshlutasamtaka sveitarfélaga. Í þeim koma fram stöðumat viðkomandi landshluta, framtíðarsýn, markmið og aðgerðir til að ná þeim markmiðum. Sóknaráætlun Norðurlands eystra er unnin í samvinnu við samráðsvettvang landshlutans en það er samstarfsvettvangur sveitarfélaga, ríkisstofnana, atvinnulífs, menningarlífs, fræðasamfélags og annarra haghafa.
Sóknaráætlunin skiptist í þrjá flokka, atvinnuþróun og nýsköpun, menningu og umhverfismál. Aðgerðaráætlun er unnin fyrir sóknaráætlun og hefur að geyma skýr markmið með mælanlegum og tímasettum mælikvörðum fyrir hvert meginmarkmið og er framvinda verkefna mæld reglulega og áætlunin uppfærð í takti við framvindu. SSNE sinnir ráðgjöf á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarmála til einstaklinga, fyrirtækja og sveitarfélaga á Norðurlandi eystra. Ráðgjafar veita m.a. ráðgjöf við rekstraráætlanagerð, upplýsingar um mögulega styrki í boði, aðstoð/ráðgjöf við stofnun á fyrirtæki, ráðgjöf við markaðssetningu og aðstoð við lánaumsóknir. SSNE leiðir einnig sameiginlega stefnumótun landshlutans varðandi samgöngur og aðra innviði og önnur áherslumál sem og endurskoðun stefnumála. Sameiginleg stefna er það verkfæri sem landshlutasamtökin nýta fyrst og fremst þegar þau beita sér fyrir hagsmunum landshlutans.
Undir lok ársins 1998 sameinuðust Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar og Atvinnumálaskrifstofa Akureyrar og með því hófst starfsemi Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar (AFE). Í dag er félagið rekið sem byggðasamlag sjö sveitarfélaga við Eyjafjörð. Þau eru: Akureyrarbær, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Fjallabyggð, Grýtubakkahreppur, Hörgársveit og Svalbarðsstrandarhreppur.
AFE er ætlað að vera leiðandi afl í uppbyggingu atvinnu og þróunar á Eyjafjarðarsvæðinu með það að markmiði að fjölga atvinnutækifærum, efla hagvöxt, auka fjölbreytileika þeirra starfa sem í boði eru, skapa hagstæð skilyrði fyrir ný verkefni og tækifæri og efla Eyjafjörð sem eftirsóttan valkost til búsetu. Með markaðssetningu vinnur AFE jafnframt að því að laða innlend sem erlend fyrirtæki inn á svæðið og skapa þeim hagstæð vaxtarskilyrði. Aðalskrifstofur AFE eru að Skipagötu 9 á Akureyri. Hjá félaginu eru þrír fastráðnir starfsmenn.
Markmið og verkefni
Markmið félagsins er að starfa í nánum tengslum við fyrirtæki og einstaklinga á svæðinu. AFE vill stuðla að samstarfi eyfirskra og erlendra fyrirtækja og kynna skipulega fyrirtækin á viðeigandi erlendum mörkuðum. Einnig að auka samvinnu fyrirtækja um hugmyndir sem fýsilegt er að tengja saman og markvisst fylgja eftir þeim verkefnum sem það kemur að á hugmyndastigi. Félagið vill stuðla að aukinni samvinnu við atvinnuþróunarfélög á Norðurlandi með samræmdum aðgerðum. Helstu verkefni félagsins eru eftirfarandi:
Vaxtarsamningur Eyjafjarðar
Vaxtarsamningur Eyjafjarðar er samningur milli iðnaðarráðuneytisins og AFE. Núgildandi samningur var undirritaður í lok febrúar 2012 og gildir fyrir árin 2012 og 2013. Meginmarkmið samningsins er að efla nýsköpun og samkeppnishæfni atvinnulífsins á starfssvæði AFE og auka hagvöxt með virku samstarfi fyrirtækja, háskóla, sveitarfélaga og ríkisins. Veittir eru styrkir úr Vaxtarsamningi til skilgreindra verkefna og skal áhersla lögð á stærri og veigameiri samvinnuverkefni, sem hafa það markmið að efla nýsköpun og þróun í atvinnulífi svæðisins. Verkefni skulu fela í sér samstarf þriggja eða fleiri aðila.
© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd