Bæjarins bestu pylsur

  • 2025
    Fjölskyldufyrirtæki
    [acf_repeater_gallery repeater="company_timeline" gallery="section_images"]

    Bæjarins Beztu Pylsur hefur á undanförnum árum styrkt stöðu sína sem eitt þekktasta vörumerki landsins. Árið 2023 var opnaður nýr pylsustandur í brottfararhöll Keflavíkurflugvallar, sem jók heildarfjölda staða í ellefu, þar af fjóra á Suðurnesjum. Árið 2024 hófst samstarf við Sport Design Sweden um fatnaðarlínu sem seldist upp á einni viku. Árið 2025 var kynnt samstarf við Wolt sem gerði pylsur aðgengilegar í heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi, auk þess sem pylsuvagn var opnaður í vetrargarði um helgar. Sama ár urðu eigendaskipti þegar reksturinn færðist til fjórðu kynslóðar fjölskyldunnar eftir andlát fyrri eiganda. Á þessum tíma hefur fyrirtækið haldið áfram að byggja á hefðbundnum gæðum, stækka þjónustu og nýta nýjar leiðir í markaðssetningu.

  • 2024
    Mokum þessu út

    Fyrir ca. tveimur árum síðan hóf Bæjarins beztu sölu á fatnaði tengdum pylsuvagninum. Í byrjun var salan aðallega til Bandaríkjanna í gegnum heimasíðuna en einnig byrjaði sala á þessum varningi í Leifsstöð. Bolir, peysur, bollar, húfur og svuntur eru meðal annars það sem þau hafa haft til sölu.

  • 2017
    Bæjarins beztu vaginn færður um set
    [acf_repeater_gallery repeater="company_timeline" gallery="section_images"]

    Frægasti pylsuvagn Íslandssögunnar, Bæjarins beztu, var færður um set þetta árið,  en þó var það bara tímabundið þar sem að framkvæmdir stóðu yfir á reitnum þar sem hann hafði verið staðsettur síðastliðin 80 ár.

    Pylsuvagninn Bæjarins beztu öðlaðist heimsfrægð þegar fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, Bill Clinton, fékk sér pyslu með sinnepi árið 2004. Að auki hafa James Hetfield, söngvari Metallica, leikarinn Charlie Sheen og Kardashian systurnar fengið sér pylsur í vagninum.

  • 2015
    Kók á Bæjarins beztu

    Bæjarins beztu sömdu við Vífilfell um sölu drykkjar frá fyrirtækinu til 2020. Kók og annað gos frá Vífilfell hefur verið selt í pylsuvagninum frá upphafi og var vilji beggja megin með áframhaldandi samstarf.

  • 2002
    Samantekt úr Ísland 2000, atvinnuhættir og menning
    [acf_repeater_gallery repeater="company_timeline" gallery="section_images"]

Stjórn

Stjórnendur

Bæjarins bestu pylsur

Austurströnd 3
170 Seltjarnarnesi
8944515

Atvinnugreinar

Upplýsingar

1 / ?

Lesa bókina