Barna- og fjölskyldustofa – BOFS

Borgartúni 21,
105 Reykjavík

Sagan

  • 2025

    Faglegar breytingar og ný meðferðarúrræði

    • Merki um öryggi (Signs of Safety): Formleg innleiðing hófst á nýju gagnreyndu verklagi í barnavernd um land allt með stórri upphafsráðstefnu í september og umfangsmikilli þjálfun fagfólks.

    • Fjölgun og aðgreining úrræða: Meðferðarheimið Esja tók til starfa í febrúar fyrir grunnmeðferð og stuðningsheimilið Blönduhlíð hóf rekstur í september. Einnig var unnið ötullega að nýju húsnæði fyrir Lækjarbakka í Gunnarsholti.

    • Svæðisbundin farsældarráð: Náðist sá áfangi að svæðisbundin farsældarráð voru starfandi í öllum átta landshlutum.

    • Áfallamiðuð þjónusta: Stigið var stórt skref í innleiðingu áfallamiðaðrar nálgunar (meðal annars aðferðarinnar Þrír stólpar) á öllum meðferðarheimilum landsins.

  • 2024

    Krefjandi áskoranir og ný vinnubrögð

    • Áföll og húsnæðisbreytingar: Erfitt ár einkenndist m.a. af lokun Lækjarbakka vegna myglu og alvarlegum bruna á Stuðlum í október, sem kallaði á neyðarlausnir í húsakosti og mikla samstöðu.

    • Ný meðferðarúrræði: Undirbúningur hófst að innleiðingu á FM-HAM (fjölskyldumiðaðri hugrænni atferlismeðferð gegn ofbeldi) í Barnahúsi og nýju miðlægu meðferðarteymi sálfræðinga.

    • Samvinna eftir skilnað (SES): BOFS tók við rekstri hins stafræna úrræðis SES Family fyrir foreldra og börn sem ganga í gegnum skilnað.

    • Aðgengi fósturbarna: Í samstarfi við Þjóðskrá var útbúinn sérstakur fósturgrunnur til að tryggja að fósturbörn gætu birst á stafrænum gáttum fósturforeldra.

  • 2023

    Samstarf, fræðsla og vaxandi þjónusta

    • Fræðslutorg og stafrænar lausnir: Fræðslutorg BOFS og Farsældarskólinn voru opnuð með rafrænum námskeiðum fyrir tengiliði farsældar, fósturforeldra og fagfólk.

    • Yfirsýn og tengslanet: Farsældarnetið efldist til muna og í lok árs voru skráðir um 700 tengiliðir og tæplega 200 málstjórar farsældar um land allt.

    • Aukin eftirspurn: Umsóknum um sérhæfð úrræði (Stuðla, MST og langtímameðferð) fjölgaði talsvert milli ára og tekin voru upp ný verklög eins og lausnafundir þvert á svið.

    • 25 ára afmæli Barnahúss: Barnahús hélt upp á aldarfjórðungs starfsemi og sinnti áfram víðtæku alþjóðlegu samstarfi, m.a. við uppbyggingu Barnahúss í Lettlandi.

  • 2022

    Stofnun Barna- og fjölskyldustofu og ný framtíðarsýn

    • Stofnun BOFS: Barna- og fjölskyldustofa tók formlega til starfa 1. janúar 2022 í kjölfar nýrra laga sem leystu Barnaverndarstofu af hólmi, með skýrari áherslu á þjónustu, ráðgjöf og stuðning en eftirlit færðist annað.

    • Innleiðing farsældarlaga: Samhliða tóku lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna gildi. Lagður var grunnur að samstarfi við sveitarfélög og „Farsældarrútan“ hóf ferðir sínar um landið.

    • Ný úrræði: Meðferðarheimilið Bjargey í Eyjafjarðarsveit tók til starfa í júní 2022 fyrir stúlkur og stálp.

    • Mótun vinnustaðar: Grunngildin Barnvæn, Opin, Fagleg og Samstíga voru mótuð ásamt nýju skipuriti og stefnu til 2030.

Stjórn og stjórnendur

Stjórn

Stjórnendur

Ólöf Ásta Farestveit
forstjóri

Starfsmenn

Myndabanki

Þjónustuflokkar

Íslensk fyrirtæki í sögu og samtíð

Sterkari saman

ISAT tengir saman sögu og samtíð íslenskra fyrirtækja og styður við öflugt atvinnulíf á Íslandi

  • 2025

    Faglegar breytingar og ný meðferðarúrræði

    [acf_repeater_gallery repeater="company_timeline" gallery="section_images"]

2021 -