Vöxtur fasteignasölunnar Borgar hefur verið samfelldur frá því að fyrirtækið hóf rekstur árið 2013 með fimm starfsmenn. Í upphafi var starfsemin til húsa að Ármúla 7 í Reykjavík en frá því í október 2014 að Síðumúla 23 í Reykjavík á allri fyrstu hæðinni. Í dag starfa á fasteignasölunni tólf manns og þar af ellefu löggiltir fasteignasalar. Þrír hinna löggiltu fasteignasala eru einnig lögmenn og einn einnig lögfræðingur. Viðskiptavinir Borgar koma úr öllum áttum og eignasafn fasteignasölunnar frá upphafi verið fjölbreytt. Frá upphafi hefur verið lögð mikil áhersla á hátt þjónustustig á öllum stigum og vandaða skjalagerð, allt frá fyrsta viðtali til afsals um einstakar fasteignir og öfluga eftirfylgni í einstökum málum. Eigendur fasteignasölunnar eru í dag þeir Brandur Gunnarsson, Börkur Hrafnsson, Ingimar Ingimarsson, Gunnlaugur Þráinsson, Sigurður Fannar Guðmundsson og Úlfar Þór Davíðsson.
Traustur grunnur og öflugt tengslanet
Starfsfólk fasteignasölunnar hefur yfirgripsmikla þekkingu og reynslu í fasteignaviðskiptum og liggur sérstaða fasteignasölunnar fyrst og fremst í mannauði fyrirtækisins og þéttum kjarna sem starfað hefur saman í langan tíma og hefur öflugt tengslanet. Ekki síst er reynsla og þekking fasteignasölunnar í margvíslegri skjalagerð sem krefst yfirlegu og nákvæmni. Starfsmannavelta hefur verið lítil og valinn maður í hverju rúmi.
Verkefni og þjónusta
Á síðustu árum hefur fasteignasölunni verið treyst fyrir stórum verkefnum þar sem hagsmunir hafa verið miklir og reynt hefur á flókna skjalagerð. Það er ekki keppikefli Borgar að verða stærsta fasteignasalan á Íslandi heldur er aðalmarkmið fyrirtækisins að veita vandaða þjónustu og ráðgjöf á sviði fasteignaviðskipta eins og það hefur gert frá upphafi hvort heldur fyrir einstaklinga, sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki um allt land.
Í mars 2021 opnaði fasteignasalan útibú á Selfossi til að sinna betur suðurhluta landsins og ört vaxandi samfélagi fyrir austan fjall.
Framtíðarsýn
Fasteignasalan mun halda áfram að byggja á góðu orðspori þar sem fara saman öguð vinnubrögð, traust þjónusta og vönduð skjalagerð.
Allar nánari upplýsingar um starfsemi Borgar fasteignasölu má nálgast á vefsíðunni:
www.fastborg.is.
© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd