Eyjablikk

  • 2025
    Eyjablikk í þróun
    [acf_repeater_gallery repeater="company_timeline" gallery="section_images"]

    Eyjablikk ehf., blikk- og stálsmiðja í Vestmannaeyjum, hefur á undanförnum árum styrkt stöðu sína sem fjölhæfur þjónustuaðili fyrir sjávarútveg, byggingariðnað og einstaklinga. Fyrirtækið hefur tekið þátt í fjölmörgum verkefnum sem endurspegla vöxt og aukna sérhæfingu í iðnþjónustu.

    Árið 2021 vakti fyrirtækið athygli með afhendingu hráefnistanka til Ísfélags Vestmannaeyja, sem sýndi fram á gæði og fagmennsku í framleiðslu. Árið 2024 var greint frá því að Eyjablikk hefði umtalsverðan starfsmannahóp og öflugt verkstæði sem þjónustar bæði sjávarútveg og byggingariðnað. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í loftræsikerfum, einangrun, klæðningum, smíði úr ryðfríu stáli og framleiðslu á sérlausnum, til dæmis flokkunarílátum.

    Þróunin síðustu fimm ár sýnir hvernig Eyjablikk hefur farið úr því að sinna einstökum verkefnum yfir í að bjóða fjölbreytta þjónustu með áherslu á tækninýjungar, gæði og sterkt samstarf við fyrirtæki og einstaklinga. Fyrirtækið hefur þannig fest sig í sessi sem lykilaðili í iðn- og byggingarverkefnum í Vestmannaeyjum.

  • 2022
    Samantekt úr Ísland 2020, atvinnuhættir og menning

    Eyjablikk ehf. var stofnað í apríl 1997 af Ísloft blikk- og stálsmiðju ehf. og Stefáni Þ. Lúðvíkssyni þegar sá síðarnefndi ákvað að flytja til Vestmannaeyja og var markmiðið með stofnununni að Stefán hefði eitthvað við að gera eftir flutning sinn til Eyja.

    Sagan
    Ísloft átti nokkrar vélar sem ekki voru í notkun hjá fyrirtækinu og þótti tilvalið að þær færu til Eyja til brúks í nýju smiðjunni. Í upphafi átti Stefán að fá verkefni frá Íslofti til að reksturinn gæti nú gengið, enda ekki vitað um þörfina fyrir fyrirtækið í Vestmannaeyjum. Fljótlega kom þó í ljós að þörfin var fyrir hendi og Eyjamenn tóku fyrirtækinu opnum örmum, bæði fyrirtæki og einstaklingar, en einungis var um eitt smíðaverkefni að ræða sem flutt var frá höfuðborginni til að halda starfseminni gangandi á upphafsárinu.

    Ýmsar myndir frá starfsemi Eyjablikks.

    Aðsetur og starfsfólk
    Eyjablikk ehf. hóf starfsemi sína í 100 fm leiguhúsnæði við Strandveginn, það þótti rúmgott og bjart í upphafi fyrir starfsmanninn. Í byrjun árs 1998 var fyrsti starfsmaðurinn ráðinn til starfa og síðan þá hefur fyrirtækið vaxið nokkuð hratt, núna starfa 18 manns í smiðju og þrjú á skrifstofu. Árið 2000 keypti Eyjablikk sitt eigið húsnæði að Flötum 27 og flutti í það um áramótin 2000-2001, það var um 200 fm að stærð. Við þessi kaup var hlutafé fyrirtækisins aukið og þá eignuðust Stefán og hans fjölskylda meirihlutann í fyrirtækinu, en Ísloft hafði átt meirihlutann frá stofnun þess. Árið 2009 keypti Stefán svo þá hluta sem Ísloft átti enn og er Eyjablikk nú alfarið í eigu fjölskyldunnar. Þar sem að fyrirtækið óx jafnt og þétt þá urðu þessir 200 fm fljótlega of litlir og því var farið í að kaupa fremrihluta húsnæðisins að Flötum 27 árið 2007. Miklar endurbætur þurfti að gera á því og var opnað á milli helminga í júní 2009, en starfsmenn og eigendur sáu alfarið um þau verk sem þar þurfti að vinna, voru þau unninn í „dauða tímanum“ sem skýrir þann tíma sem í það fór. Þrátt fyrir helmings stækkkun var starfsemin fljót að sprengja það húsnæði utan af sér og því varð úr að árið 2013 var húsnæðið að Flötum 25 keypt, við þau kaup stækkaði starfstöð Eyjablikks úr 400 fm í 1000 fm.

    Björt framtíð
    Nú hefur fyrirtækið yfir að ráða fyrsta flokks húsnæði hvað varðar aðbúnað fyrir starfsmenn sem og rúmgóða og bjarta smiðju með góðum tækjakosti og erum við tilbúnir í öll þau verk sem viðskiptavinir okkar fela okkur með bros á vör.

Stjórn

Stjórnendur

Eyjablikk

Flötum 27
900 Vestmannaeyjum
4812252

Atvinnugreinar

Upplýsingar

1 / ?

Lesa bókina