Félag kvenna í atvinnulífinu

2022

Yfirlit af sögu félags kvenna í atvinnulífinu
Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) er öflugt tengslanet athafnakvenna og leiðtoga úr öllum greinum atvinnulífsins. Félagið hét upphaflega Félag kvenna í atvinnurekstri og var stofnað 9. apríl árið 1999. Fyrsti formaður félagsins var Jónína Bjartmarz og voru stofnfélagar 287.
Frá árinu 2012 hefur markmið félagsins verið að gæta hagsmuna, efla samstöðu og samstarf kvenna í atvinnulífinu. Samkvæmt lögum félagsins er tilgangur félagsins að styrkja enn stöðu kvenna í íslensku atvinnulífi og fjölga konum í stjórnunarstöðum og í eigin rekstri. Markmið félagsins er að styðja við vöxt og frama kvenna, auka nýsköpun meðal þeirra og annan atvinnurekstur, ásamt því að efla samstöðu og samstarf þeirra á meðal.

Skipurit FKA

Með starfsemi FKA er stuðlað að framþróun í atvinnulífinu m.a. með hreyfiaflsverkefnum sem ætlað er að knýja fram breytinga í atvinnulífinu til að jafna stöðu kynjanna. FKA hefur staðið fyrir ýmsum verkefnum til að knýja fram breytingar. Fyrsta verkefnið hófst árið 2009 og fól í sér markmið um að fjölga konum í stjórnum.
Fjölmiðlaverkefni FKA hófst árið 2013, sama ár og kynjakvótalögin tóku gildi, en því er ætlað að auka sýnileika kvenna í fjölmiðlum og auka um leið þátttöku þeirra til að efla framgöngu kvenna í samfélaginu. Tilgangurinn er að tryggja fjölbreytni viðmælenda í fjölmiðlum og skapa tækifæri til að koma að mikilvægum sjónarmiðum og þekkingu allra kynja. Konur í atvinnulífinu búa yfir mikilvægri reynslu sem full ástæða er til að nýta í frétta- og þjóðfélagsumræðu. Með fjölbreyttum viðmælendahópi endurspegla fjölmiðlar samfélagið betur og þjóna um leið öllum sínum hlustendum.
Upphaflega var verkefnið til fimm ára, 2013-2017, en sá tími nægði ekki til að breyta hlutföllum í viðmælendahópi fjölmiðla með nægilega afgerandi hætti til að markmiðið næðist. Hefur því vinnunni verið haldið áfram með ýmsum hætti, m.a. með samstarfi við ýmsa fjölmiðla og fleiri aðila. Leitað hefur verið til sérfræðinga innan háskólasamfélagsins, Creditinfo og fjölmiðla um leiðir til að samræma kynjamælingar og tölfræði. Félagskonur FKA sem gefa sérstaklega kost á sér til að koma fram í fjölmiðlum eru einkenndar í félagatali á heimasíðu FKA til að auðvelda fréttamönnum og þáttastjórnendum að finna áhugaverða viðmælendur.

Stærsta hreyfiaflsverkefni FKA síðustu misseri er Jafnvægisvog FKA en það er unnið í samstarfi við Forsætisráðuneytið, Sjóvá, Deloitte, Pipar/TWBA og RUV.
Tilgangur Jafnvægisvogar FKA er:
– Að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku viðskiptalífi með það að markmiði að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja a.m.k. 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi
– Að virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða að fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir
– Að veita viðurkenningar og draga fram í sviðljósið fyrirtæki sem hafa náð markmiðum Jafnvægisvogarinnar
– Að standa fyrir viðburðum og fræðslu og vekja samfélagið til hugsunar um virði fjölbreytileika og jafnvægis
– Að taka saman heildræna stöðu og niðurstöðu greininga á stöðu stjórnenda í íslensku atvinnulífi og birta niðurstöðu

FKA heldur árlega Viðurkenningarhátíð FKA þar sem konur úr atvinnulífinu eru heiðraðar og veitt eru þrenn verðlaun;
Hvatningarverðlaun FKA, Viðurkenning FKA og Þakkarviðurkenning FKA.
– Hvatningarverðlaun FKA eru veitt veitt konu í atvinnulífinu fyrir athyglisvert frumkvæði eða nýjungar.
– FKA Viðurkenningin er veitt fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem hafa verið konum í atvinnulífinu sérstök hvatning og fyrirmynd.
– Þakkarviðurkenningin er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf  sem stjórnanda í atvinnulífinu.
Konur sem hafa verið heiðraðar í gegnum árin hafa fundið á eigin skinni hvernig viðurkenningar FKA eru mikið hreyfiafl og hafa umtalsvert vægi. Félagið óskar hverju sinni eftir tilnefningum af landinu öllu þar sem mikilvægt er að fá fjölbreyttan hóp kvenna á blað. Dómnefnd er skipuð fjölbreyttum einstaklingum með það að markmiði að fá sem mesta fjölbreytni í viðurkenningarvalið.
Fyrsta FKA viðurkenningin var veitt á fyrsta starfsári félagsins, en þá fékk Hillary Rodham Clinton, þáverandi forsetafrú Bandaríkjanna viðurkenninguna. Síðan þá hafa verið veittar viðurkenningar á hverju ári til að vekja athygli á konum sem eru að gera framúrskarandi góða hluti í atvinnulífinu bæði á Íslandi og utan þess.

Félagið hefur vaxið og dafnað jafnt og þétt í gegnum árin. Félagið samanstendur árið 2022 af 1.300 félagskonum sem ýmist eru með eigin atvinnurekstur eða stjórnendur og leiðtogar í íslensku atvinnulífi og stendur fyrir viðburðum, fræðslu, veitir ráðgjöf og knýr fram breytingar á lögum og venjum til að gæta jafnvægis og fjölbreytileika innan atvinnulífsins.
FKA er með þrjár sjálfstæðar megindeildir; Atvinnurekandadeild A-FKA, LeiðtogaAuði og Framtíð FKA.
– A-FKA er eingöngu fyrir konur sem eiga og reka fyrirtæki. Markmið deildarinnar er að standa vörð um  hagsmuni félagskvenna sem atvinnurekenda, standa fyrir fræðslufundum sem taka mið af þörfum þeirra og áhugasviði og efla tengslanet þeirra.
– LeiðtogaAuður er skipuð konum sem hafa yfirgripsmikla stjórnunarreynslu úr atvinnulífinu, bæði einkageira og hinum opinbera, hafa gegnt ábyrgðarstöðu og vilja taka þátt í eflingu íslensks atvinnulífs.
– FKA Framtíð er deild fyrir konur sem vilja vaxa og ná lengra í íslensku atvinnulífi. Deildin leggur mikla áherslu á virka tengslanetsuppbyggingu og hagnýta fræðslu sem nýtist sem innlegg í starfsframa og þróun, bæði fag- og persónulega.

Að auki eru fjórar landsbyggðadeildir starfandi; FKA Norðurland, FKA Suðurland, FKA Suðurnes og FKA Vesturland sem og fjölmargar nefndir sem gegna ólíkum hlutverkum.
Formaður félagsins 2021-2023 er Sigríður Hrund Pétursdóttir og framkvæmdastjóri þess er Andrea Róbertsdóttir.

Borgartún 35
105 Reykjavík
5719555
Þjónustuflokkar
Upplýsingar
Fyrirtækjaskrá Staðsetning á korti

Ísland, atvinnuhættir og menning

© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd