Fiskkaup hf.

  • 2025
    Aðalbjörg RE-5

    Fiskkaup gekk til samninga um kaup á skipinu Aðalbjörgu RE-5 ásamt veiðikvóta, sem styrkti stöðu félagsins í flotauppbyggingu.

  • 2022
    Nýtt vinnslukerfi

    Árið 2022 var sett upp nýtt vinnslukerfi um borð í Kristrúnu RE-177 í samstarfi við KAPP Skaginn, sem gerði ferska grálúðuvinnslu mögulega á sjó og tryggði betri nýtingu hráefnis.

  • 2021
    Kristrún RE 177

    Fisskaup hf. festi kaup á línuskipinu Argos Froyanes, sem fékk nafnið Kristrún RE 177, til veiða á grálúðu.

  • 2022
    Samantekt úr Ísland 2020, atvinnuhættir og menning

    Fiskkaup hf. er fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1983 af Jóni Ásbjörnssyni. Af samfélagslegri ábyrgð leggur fyrirtækið höfuðáherslu á ábyrgar og sjálfbærar fiskveiðar í sátt við umhverfið.

    Sagan
    Sögu fyrirtækisins má rekja aftur til 1950 en Jón, stofnandi Fiskkaupa hafði áður rekið fiskbúð og grásleppuverkun í áraraðir við Reykjavíkurhöfn með föður sínum, Ásbirni Jónssyni. Í dag er fyrirtækið rekið af þriðju kynslóð fjölskyldunnar en Ásbjörn, sonur Jóns Ásbjörnssonar er framkvæmdarstjóri fyrirtækisins. Fjórða kynslóð er nú þegar starfandi hjá fyrirtækinu.
    Meginmarkmið Fiskkaupa í upphafi var að kaupa fisk af bátum og salta eða senda ferskan til fiskmarkaða í Bretlandi. Möguleiki á útflutningi hafði þá nýlega opnast og átti Jón Ásbjörnsson, stofnandi Fiskkaupa frumkvæðið að því. Um 1988 fékk fyrirtækið fyrst allra leyfi til að selja eigin saltfiskafurðir fram hjá SÍF sem hafði haft einokun fram að því. Leyfið takmarkaðist fyrst við sölu saltfisksflaka á Spáni sem gaf Fiskkaupum verulegt samkeppnisforskot umfram önnur fyrirtæki þar sem hærra verð fékkst fyrir fiskinn. Fyrirtækið óx mjög hratt í kjölfar þessa og var komið með útibú í Ólafsvík, Grímsey og á Patreksfirði með yfir 100 manns í vinnu um 1993. Sama ár keypti Fiskkaup hf. 2.500 fermetra húsnæði Ríkisskipa við Reykjavíkurhöfn og breytti því í fiskverkun.
    Vegna minnkandi kvóta og aukinnar samkeppni um hráefnið upp úr 1995 var ákveðið að sameina alla fiskvinnslu Fiskkaupa á einum stað í Reykjavík árið 1996. Fiskkaup hóf útgerð árið 1994 með kaupum á línubátnum Alberti Ólafssyni frá Keflavík. Með útgerðinni varð reksturinn ekki eins háður innlendum fiskmörkuðum um hráefni sem þýddi jafnframt meiri stöðugleika í vinnslunni. Árið 2008 festi fyrirtækið svo kaup á stærra línuskipi sem fékk nafnið Kristrún, en „gamla Kristrún“ fékk nafnið Kristrún II.
    Velta og hagnaður Fiskkaupa hefur aukist jafnt og þétt síðustu ár og hefur afkoman verið góð. Veltan nam rúmlega 3,4 milljörðum króna árið 2019. EBIDTA var 400 milljónir.

    Ábyrgar og sjálfbærar fiskveiðar
    Fiskkaup stundar ábyrgar fiskveiðar. Markmið Fiskkaupa er að stunda ábyrgar veiðar úr fiskistofnum á Íslandsmiðum og stuðla að sem bestri sátt við lífríki hafsins og umhverfið. Fyrirtækið hefur þá trú að mikilvægt sé að viðhalda heilbrigði vistkerfi fyrir komandi kynslóðir. Þá eru umhverfisvæn veiðarfæri notuð við veiðarnar og er eingöngu notaður línuveiddur fiskur við framleiðsluna. Fiskkaup vinnur samkvæmt HACCP gæðastöðlum.
    Fiskkaup hafa hlotið MSC vottun vegna veiða og framleiðslu á afurðum úr þorski en MSC staðallinn er sá víðtækasti og virtasti í heiminum fyrir sjálfbærar fiskveiðar.
    Fiskkaup eiga og gera út línu- og netaskipið Kristrúnu RE 177 og krókaaflsmarksbátanna Jón Ásbjörnsson RE 777 og Höllu Daníelsdóttur RE 770.
    Grálúðuveiðar hafa verið hornsteinninn í rekstri fyrirtækisins síðustu ár. Afli skipa félagsins á fiskveiðiárinu 2018-2019 og 2019-2020 var um 67.500 þoskígildistonn, en af þessum 7.500 þoskígildistonnum er um 6.700 tonn grálúða. Línu- og netaskipið Kristrún RE-177 hefur verið gerð út allt árið og hafa veiðarnar gengið vel og afli um 2.000 tonn af grálúðu á ári.
    Aðsetur Fiskkaupa er á Fiskislóð 34 við Reykjavíkurhöfn og starfrækir fyrirtækið fullkomna fiskvinnslu sérhannaða fyrir starfsemina í nýjum húsakynnum. Fyrsta flokks aðstaða með nýjustu tækni tryggir bestu möguleg gæði og stöðugleika allt árið um kring. Nýr og afar fullkominn fiskvinnslubúnaður frá Völku var tekin í notkun í janúar 2021. Það gerir fyrirtækinu kleift að framleiða fullunnar fiskafurðir fyrir mjög kröfuharðan markað.

    Gott starfsfólk lykillinn að gæðavöru
    Hjá Fiskkaupum starfa um 80 manns. Starfsmannaveltan er lítil og starfsaldur hár en meðal starfsaldur skrifstofufólks Fiskkaupa er um 18-19 ár. Mikið er lagt upp úr þjálfun starfsfólks og um leið að aðbúnaður þess sé sem bestur. Gott starfsfólk skiptir höfuðmáli í framleiðslu gæðavara og leggur því Fiskkaup mikinn metnað í að ráða til sín gott starfsfólk.

Stjórn

Stjórnendur

Fiskkaup hf.

Fiskislóð 34
101 Reykjavík
5207300

Atvinnugreinar

Upplýsingar

1 / ?

Lesa bókina