Snemma árs 2026 opnuðu Hótel Glymur og Eldey Airport Hotel undir merkjum Fjord Hotels eftir umfangsmikinn undirbúning og endurbætur. Í byrjun maí bættist Hótel Bifröst við rekstur félagsins og varð þar með fjórða hótelið í eignasafni þess. Með stækkuninni styrkti Fjord Hotels stöðu sína sem vaxandi hótelkeðja í íslenskri ferðaþjónustu með samtals 207 herbergi á fjórum hótelum.
Eftir farsæla uppbyggingu Hótels Vesturlands hélt Fjord Hotels áfram sókn sinni á íslenskum hótelmarkaði. Um mitt ár hófust viðræður um rekstur Hótels Glyms í Hvalfirði og Eldey Airport Hotel við Keflavíkurflugvöll. Með þessum skrefum lagði félagið grunn að frekari stækkun og uppbyggingu hótelkeðju sem gæti þjónað gestum víða um land.

Eftir að hafa byggt upp öflugt samstarf á sviði ferða- og veitingaþjónustu tók Fjord Hotels stórt skref inn í hótelrekstur þegar félagið tók við rekstri Hótels Vesturlands í Borgarnesi. Gerður var langtímaleigusamningur um hótelið og í mars voru dyr þess opnaðar á ný fyrir gestum eftir umfangsmikinn undirbúning, uppbyggingu og endurskipulagningu starfseminnar.
Yfirtakan markaði upphaf nýs vaxtarskeiðs fyrir félagið. Eigendur félagsins lögðu áherslu á að byggja upp sterkan rekstrargrunn, efla þjónustu og skapa jákvæða upplifun fyrir gesti. Hótel Vesturland varð jafnframt fyrsta hótelið sem starfaði undir merkjum Fjord Hotels og lagði grunninn að frekari uppbyggingu félagsins á komandi árum

Fjord Hotels varð til upp úr samstarfi reynslumikils fólks úr veitinga- og ferðageiranum. Einar Hannesson og Guðbjörg Einarsdóttir, sem ráku Eyju Vínstofu á Akureyri, hófu samstarf við Bjarna Rúnar Bequette og Halldóru Guðjónsdóttur sem höfðu byggt upp starfsemi Sigló veitinga á Siglufirði. Úr samstarfinu varð grunnurinn að Fjord Hotels.