Hilti

2022

Hugmyndafræði HILTI
Alveg frá upphafi hefur útbreiðsla HILTIvara byggst á beinni markaðssókn þar sem sérþjálfaðir sölumenn heimsækja væntanlega viðskiptavini og kynna fyrir þeim rétta meðhöndlun, umhirðu og notkunarmöguleika hvers verkfæris fyrir sig. Í því skyni er starfsfólk gjarnan sent utan á ítarleg starfsþjálfunarnámskeið. HILTI-vörurnar hafa orð á sér fyrir að vera mjög endingargóðar og vandaðar en þó dýrar enda er hugsunin sú að hér sé verið að fjárfesta í gæðum. Að sama skapi er öll þjónusta byggð á kunnáttu, þekkingu og reynslu og er henni miðlað dyggilega í reglulegum söluferðum hringinn í kringum landið. Við þetta skapast persónuleg tengsl við gæðavörur sem endast til langframa.
Sama markaðssetning gildir ef HILTI vörur bjóðast í byggingavöruverslunum á meginlandi Evrópu eða í Bandaríkjunumn. Við slíkar aðstæður eru þær aldrei fyrirliggjandi nema í sérmerktum básum í hinum einkennandi rauða og hvíta lit eða því fyrirkomulagi sem nefnist „Shop in shop“. Þar geta viðskiptavinir ávallt leitað til sérþjálfaðs starfsmanns sem er til þjónustu reiðubúinn og þekkir sína vöru. Naglabyssur, borvélar, höggfleygar og stingsagir eru nærtæk dæmi um algenga fylgihluti flestra iðnaðarmanna. Til þess að gæta fyllsta öryggis í meðferð slíkra tækja, eru þau gjarnan kyrfilega geymd í sérhönnuðum töskum með vörumerki viðkomandi framleiðsluaðila á áberandi stað. Eitt af þessum kunnuglegu merkjum er HILTI sem dregur nafn sitt af þýska vélaverkfræðingnum Martin Hilti sem árið 1941 stofnaði lítið verkstæði í eigin nafni í borginni Schaan í smáríkinu Liechtenstein. Þróun rekstrarins varð síðan á þann veg að HILTI umbreyttist í umsvifamikinn framleiðanda á fjölþættri flóru rafmagnsverkfæra með starfsemi á heimsvísu í yfir 140 löndum. Frá öndverðum sjöunda áratugnum hefur HILTI umboðið á Íslandi verið í höndum fjölskyldu Óskars G. Sigurðssonar. Í dag er fyrirtækið rekið undir nafninu Hagi ehf. og er aðsetur þess í rúmgóðu húsnæði að Stórhöfða 37 í Reykjavík. Þar er starfrækt verslun, vélaleiga og verkstæði. Hjá fyrirtækinu eru fimm fastráðnir starfsmenn.

Upphafið
Óskar G. Sigurðsson er fæddur í Reykjavík árið 1939 og ólst upp í Þingholtunum. Kona hans er Sóley Sigurjónsdóttir (1938) en þau giftu sig árið 1959. Börn þeirra eru Ragnhildur, Birna, Sigurjón, Óskar og Kristján Ingi en þau hafa öll unnið hjá fyrirtækinu í langan eða skamman tíma. Í dag er Kristján Ingi framkvæmdastjóri Haga ehf. og að auki starfar bróðirinn Óskar þar sem sölufulltrúi. Þegar þetta er ritað eru barnabörnin orðin alls fimmtán talsins ásamt tveimur barnabarnabörnum. Upphafið að skipulegum innflutningi og sölu á vörum frá HILTI má rekja til ársins 1962. Þetta sama ár stofnaði Óskar G. Sigurðsson umboðs- og heildverslun með stjúpföður sínum Birni G. Björnssyni (1905-1999) en hann átti þá að baki farsælan feril sem einn eigandi og forstjóri Sænsk-íslenska frystihússins við Arnarhól. Umboðs- og heildverslun Björns G. Björnssonar sf. var að Skólavörðustíg 3a. Starfsemin fólst í innflutningi, umpökkun og heildsölu á búsáhöldum og gjafavöru frá Japan.
Í júnímánuði árið 1963 birtist lítil auglýsing í Morgunblaðinu þess efnis að danska fyrirtækið Nordisk Trading óski eftir „umboðsmanni til að selja, fyrir prósentur, nokkra góða framleiðsluhluti fyrir tré- og byggingariðnað“. Feðgarnir slógu til og þar með var markað upphafið á hraðri útbreiðslu á rafmagnstækjum frá HILTI á Íslandi. Reksturinn varð snemma mjög blómlegur og skákaði brátt japönsku búsáhöldunum. Við upphaf ársins 1968 ákváðu þeir feðgar Óskar og Björn að einbeita sér eingöngu að HILTI og fluttu starfsemina í sérinnréttaðan bílskúrinn að heimili þeirra að Freyjugötu 43. Fyrstu innfluttu rafmagnstækin voru einfaldar borvélar ásamt nýmóðins naglabyssum sem í þá daga voru auglýst sem „hraðfestingatæki fyrir járn og steinsteypu“ en helsta slagorð fyrirtækisins var þessi grípandi setning: „Það hefst með HILTI“. Aukin umsvif starfseminnar á áttunda áratugnum áttu síðan eftir að brjóta sér leið út úr bílskúrnum og yfir í sérhannað atvinnuhúsnæði við Ármúlann, fyrst í húsi númer 23 og síðan í númer 26.

Framgangurinn
Við upphaf níunda áratugarins kom að því að Óskar G. Sigurðsson keypti hlut stjúpföður síns, Björns G. Björnssonar, og móður sinnar, Ragnhildar Kristjánsdóttur Björnsson, í umboðs- og heildversluninni. Við þessar eignabreytingar var nafni fyrirtækisins breytt yfir í Hilti hf. og starfsemi þess flutt í Skeifuna 3 en þar var aðsetrið um 12 ára skeið. Á þeim tíma rak fyrirtækið stærstu vélaleigu landsins auk þess að flytja inn og selja vörur tengdar golfíþróttinni.
Rekstur fyrirtækisins hefur ávallt rímað við þensluna í þjóðfélaginu á hverjum tíma. Við upphaf tíunda áratugarins ríkti alvarleg kreppa á íslenskum byggingamarkaði og fór Hilti hf. ekki varhluta af því. Fyrirtækið hafði áætlað að flytja úr Skeifunni yfir í nýtt stórhýsi að Krókhálsi 10 en áður en yfir lauk varð byggingaraðilinn gjaldþrota í hálfköruðu húsi. Þetta olli því að starfsemin varð óstarfhæf um tíma og átti sinn samastað í nokkrum vörugámum. Þessum rekstrarörðugleikum lauk árið 1993 þegar fyrirtækið Hagi ehf. var opinberlega stofnað af feðgunum Óskari og Kristjáni. Í beinu framhaldi var húsnæði við Malarhöfða 2 tekið á leigu og síðar keypt.

Hágæða vörur – Traust þjónusta
Núverandi aðsetur Haga, að Stórhöfða 37, var tekið í notkun árið 2006. Þar er fyrirliggjandi mjög rúmgóður sýningarsalur, sem geymir þverskurðinn af fjölbreyttu vöruframboði HILTI enda er uppsetning hans samkvæmt staðli móðurfélagsins. Í salnum er til reiðu geysilegt úrval meðfærilegra rafmagnsverkfæra sem eiga það sammerkt að vinna sig í gegnum steypu eða stál á einn eða annan hátt. Þetta eru, t.d. naglabyssur, skrúfvélar, kjarnaborar, slípirokkar, stingsagir, demantssagir og höggfleygar og er þá fátt eitt nefnt. Einnig er um að ræða ýmsar tengdar vörur eins og almenn trésmíðaverkfæri. Múrfestingar, röraupphengjur og byggingavinklar. Öll tæki frá HILTI eru áletruð með „Lifetime service“. Þetta þýðir að notandi á rétt á 1-2 ára fríu viðhaldi og lífstíðar verksmiðjuábyrgð auk þess sem hann þarf ekki að standa straum af fullum viðgerðarkostnaði ef alvarleg bilun á sér stað. Boðið er upp á frítt lán á sambærilegu tæki á meðan viðgerð stendur yfir. Hagi ehf. býður upp á, auk áðurnefndra vara frá HILTI, vörur fyrir brunaþéttingar, lasermælingar, iðanaðarryksugur, batterísborvélar o.s.frv.
Auk HILTI vörulínunnar hefur HAGI ehf. opnað 260m2 vinnufata- og öryggisvöruverslun við hlið HILTI verslunarinnar. Þar er boðið upp á vinnuföt og öryggisvörur frá heimsþekktum framleiðendum á borð við Honeywell, UVEX, Heckel, Snickers, North, Howard Leight/Bilsom, Miller, Antec og margt fleira. www. hilti.com

Ísland, atvinnuhættir og menning

© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd