Hitaveita Egilsstaða og Fella var stofnuð 22. mars 1979 af Egilsstaðahreppi og Fellahreppi. Fram að því var olía mest notuð til húshitunnar en þegar heimsverð á olíu hækkaði fóru menn að huga að hitanum undir Urriðavatni. Urriðavatn er staðsett tæpa sex kílómetra norður af Egilsstöðum og myndaði heita vatnið svokallaðar Tuskuvakir. Kynjaskepnan Tuska á að hafa nýtt sér vakirnar til að komast úr vatninu. Söguna má rekja allt aftur til 1944, þegar Gísli Helgason, bóndi í Skógargerði benti Gunnari Gunnarssyni skáldi á vakirnar í Urriðavatni. Fyrstu mælingar voru gerðar í og við vatnið 1963.
Félagið hefur gengið í gegnum ýmsar breytingar á 40 árum. Fyrstu árin voru þung í rekstri og útlitið ekki alltaf gott, en eftir vel heppnaða borun 1983 hefur rekstur og starfsemi verið í mjög góðum farvegi. Í október 2020 sameinuðust fjögur sveitarfélög í Múlaþing. Þá keyptu HEF veitur allar vatns- og fráveitur í Múlaþingi og þjónustusvæði veitunnar stækkaði svo um munar. Á aðalfundi félagsins í mars 2021 var nafninu breytt í HEF veitur.
Hitaveitan
Upphafsárin einkenndust af mikilli rannsóknarvinnu og voru sex holur boraðar við Urriðavatn frá árunum 1975 til 1983. Fjórða holan sem boruð var tókst vel en hún gaf af sér 15l/s af 64°C heitu vatni. Sú hola leiddi til stofnunar veitunnar. Fljótlega kom upp vandamál, en vatnið í holum UV-04 og UV-05 fór hratt kólnandi og árið 1983 var það komið niður í 50°C. Þá var ráðist í frekari leit að varma og vatni en samhliða var byggð kyndistöð til að skerpa á vatnshitanum. Árið 1983 var hola UV-08 boruð sem gaf 46l/s af 75°C heitu vatni, sem dugði sem aðalvinnsluhola. En íbúum fjölgaði ört og árið 2001 var hafist handa að bora nýja vinnsluholu, UV-09. Hún reyndist ekki eins gjöful og UV-08 en hún hefur nýst sem varahola veitunnar. Árið 2005 var hola UV-10 boruð og gaf hún um 77l/s af 79°C heitu vatni og hefur síðan verið aðalvinnsluhola veitunnar.
Tíu vinnsluholur hafa verið boraðar við Urriðavatn og eru þrjár þeirra nýttar í dag. UV-10 er með öflugustu borholum á lághitasvæði á Íslandi. Árið 2017 var settur nýr og öflugri mótor á dæluna og hún síkkuð en við þessar breytingar jókst afkasta geta holunnar í 100 l/s af 79°C heitu vatni.
Gæði heitavatnsins við Urriðavatn eru einstök, það er vottað neysluhæft og má því drekka það og nota í matvælavinnslu.
Vatnsveitan
Árið 2005 tók HEF við rekstri á vatnsveitum Fljótsdalshéraðs en þær voru fimm talsins; á Egilsstöðum, Fellabæ, Hallormsstað, Eiðum, Brúarási og Sænautaseli á Jökuldalsheiði. Árið 2009 tók HEF í notkun nýtt vatnsból í aurkeilu Köldukvíslar á Eyvindarárdal. Þar eru þrjár borholur sem gefa samtals um 65l/s og sinna Egilsstöðum og Fellabæ. Miðlunartankur veitunnar, fallegt kennileiti, er á Selöxl í Selskógi ofan Egilsstaða.
Fráveitan
Árið 2009 tók HEF við rekstri fráveitu sveitarfélagsins. Á Egilsstöðum og Fellabæ eru fjögur hreinsivirki ásamt þrem rotþróm. Skólphreinsivirkin anna ekki nema hluta af því magni sem er í kerfinu. Síðustu ár hefur HEF unnið að því að minnka vatn í fráveitulögnum með því að tvöfalda lagnir og veita regnvatni í opna skurði eða beint út af plönum. Stefna Fljótsdalshéraðs er að fráveitumál sveitarfélagsins byggi á umhverfisvænum lausnum sem skipi því í fremstu röð. Hefur því stjórn HEF samþykkt fjárfestingarstefnu til 10 ára þar sem unnið verði að því markmiði. Felur hún meðal annars í sér að reisa eina hreinsistöð, nægilega öfluga til að anna því magni sem kemur úr fráveitukerfinu.
Gagnaveitan
Frá árinu 2005 hefur HEF gert ráð fyrir möguleika á gagnaveitu í tengslum við framkvæmir við veitukerfi. Í dag telur röra- og ljósleiðaranet félagsins yfir 112 km. Gagnaveita er notuð til að fjarstýra öllum útstöðvum HEF.
Þróun fyrirtækisins:
1963 Fyrstu rannsóknir um nýtingu heits vatns við Urriðavatn.
1979 Fyrsta borholan virkjuð og stofnun Hitaveitu Egilsstaða og Fella.
2005 HEF tekur við rekstri á Vatnsveitu Fljótsdalshéraðs og rekstrarformi breytt í einkahlutafélag.
2009 HEF tekur í notkun nýtt vatnsból við Köldukvísl á Eyvindarárdal og byggir miðlunartank.
2011 HEF tekur við rekstri fráveitu Fljótsdalshéraðs.
2019 HEF er falin uppbygging ljósleiðaranets í dreifbýli Fljótsdalshéraðs, Ísland ljóstengt.
2020 Sameining sveitarfélaga í Múlaþing. HEF kaupir vatns- og fráveitur Djúpavogs,
Seyðisfjarðarkaupstaðar og Borgarfjarðar eystri.
2021 Nafni félagsins breytt í HEF veitur.
Aðsetur, mannauður og stjórn
Skrifstofa HEF veitna er staðsett í Ráðhúsi Fellamanna í Fellabæ. Starfsmenn félagsins voru 6 talsins í lok árs 2020. HEF veitur er einkahlutafélag í 100% eigu Múlaþings. Stjórn HEF veitna er skipuð 5 aðalmönnum og 5 til vara.
© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd