Kraftvélar

  • 2025
    Bauma-sýningin
    [acf_repeater_gallery repeater="company_timeline" gallery="section_images"]

    Árið 2025 markaði áframhaldandi framþróun hjá Kraftvélum. Fyrirtækið tók þátt í alþjóðlegum viðburðum á borð við Bauma-sýninguna, sem er ein stærsta og mikilvægasta tækja- og vinnuvélasýning í Evrópu. Þátttakan endurspeglaði áherslu fyrirtækisins á að fylgja nýjustu tæknium og þróun á sínum sviðum. Á árinu hélt fyrirtækið áfram að þjónusta atvinnulíf landsins með leigu og sölu á fjölbreyttum tækjum, þar á meðal vinnuvélum, lyfturum og landbúnaðartækjum. Kraftvélaleigan, sem er hluti af starfsemi fyrirtækisins, hélt áfram að vaxa og bjóða viðskiptavinum sveigjanlegar lausnir í útleigu atvinnutækja. Áherslan var áfram á fagmennsku, öryggi og áreiðanleika í allri þjónustu.

  • 2024
    Áherslur á stöðugleika og aðgengi

    Á árinu 2024 hélt fyrirtækið áfram að efla samstarf við viðskiptavini og fjölga úttektum á nýjum verkefnum. Aukið umfang verkefna leiddi til þess að Kraftvélar vildu styrkja starfsemi sína enn frekar og auglýstu nokkur störf í bæði varahlutaverslun, verkstæði og á lager. Reglulegar tilkynningar um opnunartíma, þjónustu og starfsemi sýndu að fyrirtækið lagði áfram áherslu á stöðugleika og aðgengi fyrir viðskiptavini. Megináherslan var áfram á að þjónusta markaðinn með fjölbreytt úrval af vinnuvélum, lyfturum og landbúnaðartækjum frá þekktum framleiðendum og halda uppi faglegri þjónustu í varahlutum og verkstæði.

  • 2023
    Sala og leiga atvinnutækja
    [acf_repeater_gallery repeater="company_timeline" gallery="section_images"]

    Árið 2023 héldu Kraftvélar áfram að styrkja stöðu sína sem eitt leiðandi fyrirtæki landsins í sölu og leigu á atvinnutækjum fyrir landbúnað, jarðvinnu og vörumeðhöndlun. Á þessu ári voru afhentar fjölmargar vélar og tæki til fyrirtækja um allt land, auk þess sem fyrirtækið sinnti viðhaldi, varahlutaþjónustu og reglulegri ráðgjöf til viðskiptavina. Á sama tíma tók fyrirtækið þátt í útboðum á vegum ríkis og sveitarfélaga, sem endurspeglaði virka þátttöku þess á opinberum markaði og stöðu þess sem trausts þjónustuaðila.

  • 2022
    Samantekt úr Ísland 2020, atvinnuhættir og menning

    Saga Kraftvéla ehf. nær aftur til ársins 1989 er P. Samúelsson hf. tók við umboði Komatsu vinnuvéla og hóf sölu og markaðssetningu í samstarfi við V. Æ. S. vélaverkstæði hf., sem þá var m.a. í eigu Ævars Þorsteinssonar. V. Æ. S vélaverkstæði hf. var með þjónustusamning við P. Samúelsson og sá V. Æ. S. um alla þjónustu varðandi viðgerðir og varahluti fram til ársins 1992, en þá ákvað P. Samúelsson hf. að yfirtaka viðgerðar- og varahlutaþjónustuna fyrir Komatsu og stofna nýtt fyrirtæki í kringum reksturinn, þar með urðu Kraftvélar ehf. til.

    Starfsemin
    Kraftvélar hóf rekstur 1. júní árið 1992 með tvö vörumerki, Komatsu vinnuvélar og Toyota lyftara. P. Samúelsson hf. hafði verið með umboð fyrir Toyota lyftara fyrir stofnun Kraftvéla. Fyrirtækið hóf rekstur í leiguhúsnæði að Funahöfða 6, í Reykjavík með 7 starfsmenn. Það voru þrír viðgerðamenn, sölumaður, varahlutastarfsmaður, gjaldkeri og framkvæmdastjóri. Af þessu hópi starfa enn þrír hjá fyrirtækinu en það eru þau Olga Kristjánsdóttir, Gunnar Hrafn Jónsson og Ævar Þorsteinsson.
    Fyrirtækið stækkaði ört og fljótlega varð öll aðstaða við Funahöfða of lítil fyrir starfssemina og var því farið að huga að flutningi. Ákveðið var að byggja nýjar höfuðstöðvar fyrir Kraftvélar á Dalvegi 6-8 í Kópavogi og flutti fyrirtækið í nýbygginguna vorið 1998 og urðu þá mikil umskipti í rekstri fyrirtækisins. Húsnæðið stækkaði um tæpa 1.500 fm2 ásamt stóru útisvæði og fjölgun starfsmanna um tæp 20 ný stöðugildi. Starfsmannafjöldinn varð mest tæplega 70 manns hér á landi árið 2007 en í dag starfa 40 starfsmenn hjá Kraftvélum.
    Árið 2000 var ákveðið að auka við þjónustuna og var þá Kraftvélaleigan stofnuð. Það félag sérhæfir sig í útleigu á vinnuvélum, lyfturum og landbúnaðartækjum. Og hefur sá þáttur í rekstrinum farið vaxandi ár frá ári.
    Árið 2010 færði félagið enn út kvíarnar og bætti við sig fleiri leiðandi vörumerkjum þegar Kraftvélar hóf starfssemi á landbúnaðarmarkaðnum, með New Holland og CaseIH dráttavélar. Loks var vöruúrvalið aukið enn frekar árið 2016 þegar Kraftvélar tók við umboði fyrir Grove bílkrana og Potain byggingarkrana. Allt frá stofnun fyrirtækisins hefur verið lögð höfuðáhersla á góða og persónulega þjónustu við viðskiptavini. Góð þjónusta tryggir framtíðarvöxt og stöðugleika fyrirtækisins.

    Mannauður
    Starfsmannavelta hefur verið lítil hjá fyrirtækinu í gegnum árin og mjög góður starfsandi. Kraftvélar var valið fyrirmyndarfyrirtæki ársins 2010. Félagið er rekið af þeim feðgum Ævari Þorsteinssyni og Viktori Karli Ævarssyni.

    Framtíðarsýn
    Vera leiðandi í sölu, leigu og þjónustu á hágæða tækjum og búnaði fyrir jarðvinnumarkað, vörumeðhöndlun og landbúnað á Íslandi og geta veitt viðskiptavinum okkar heildarlausnir.

Stjórn

Stjórnendur

Kraftvélar

Dalvegi 6-8
201 Kópavogi
5353500

Atvinnugreinar

Upplýsingar

1 / ?

Lesa bókina