Laxar fiskeldi er fiskeldisfyrirtæki sem framleiðir hágæða lax fyrir kröfuhörðustu markaði heims bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Fyrirtækið er stofnað árið 2005 með það að markmiði að hefja umfangsmikla framleiðslu á laxi með því að ala upp seiði í Ölfusi og sjókvíaleldi á Austurlandi. Stofnendur fyrirtækisins voru bræðurnir Gunnar Steinn Gunnarsson og Einar Örn Gunnarsson ásamt Helga Sigurðssyni og öðrum fjárfestum. Framkvæmdastjóri félagsins er Jens Garðar Helgason, búsettur á Eskifirði. Í dag eru 60 hluthafar í félaginu. Stærstu hluthafarnir er norska fiskeldisfyrirtækið Måsoval ásamt Skinney-Þinganes á Hornafirði.
Fyrirtækið er með höfuðstöðvar á Eskifirði en er einnig með skrifstofur í Kópavogi.
Framkvæmdastjórn
Aðalstjórn
Starfsemin
Laxar fylgja ítrustu kröfum við framleiðslu sína og hafa virkt innra eftirlit með starfsemi sinni. Allt kapp er lagt á að framleiða hágæða vöru með umhverfisvænum og sjálfbærum hætti.
Laxar framleiða lax frá klaki til slátrunar úr hrognum frá Stofnfiski. Seiðaeldisstöðvar Laxa eru staðsettar í Ölfusi þar sem seiðin eru klakin og alin upp við kjöraðstæður þar sem gott aðgengi er að sjó og vatni. Seiðaeldisstöðvarnar eru þrjár, á Bakka, Fiskilóni og við Laxabraut. Fyrirtækið hefur fjárfest umtalsvert á undanförnum árum við að útbúa fyrsta flokks aðstæður til seiðaeldis með vel þjálfuðu og reynslumiklu starfsfólki á svæðinu.
Þegar laxinn hefur verið alinn upp í Ölfusi er hann fluttur á Reyðarfjörð þar sem hann er fóðraður í sjókvíaleldisstöðvum fyrirtækisins í Reyðarfirði. Þar rekur fyrirtækið fullkomið sjókvíaeldi með 16.000 tonna framleiðsluheimild. Laxar hafa yfir að ráða öflugum fiskeldisbúnaði sem fylgir nýjustu tækni og þróun sem er forsenda þess að vera leiðandi á sínu sviði. Fyrirtækið hefur því fjárfest í fyrsta flokks fóðurprömmum, sjókvíum og öðrum eldisbúnaði á undanförnum árum. Sjókvíar Laxa koma frá Aqualine og eru fyrsta flokks kvíar sérhannaðar til að þola íslenskar aðstæður, koma í veg fyrir sleppingar og tryggja góðar vinnuaðstæður.
Við sjókvía- og seiðaeldið kappkostar fyrirtækið við að tryggja: Öflugt innra eftirlit, hágæða fóður og góða fóðurnýtingu, lágt kolefnisspor, hámarks fiskivelferð sem tryggir góð vaxtarskilyrði og stuttan eldistíma í sjó.
Vinnsla afurða
Á Djúpavogi er starfrækt öflugt sláturhús, Búlandstindur sem er í eigu Laxa og fleiri samstarfs-aðila. Framleiðslugeta sláturhússins er 125 tonn á dag. Hjá Búlandstindi eru 82 starfsmenn.
Afurðin
Eftirspurn eftir heilnæmri og umhverfisvænni próteinafurð eins og laxi vex stöðugt í heiminum samhliða því sem próteinþörf heimsins vex. Lax er ein umhverfisvænasta matvælaframleiðsla sem til er, rík af próteinum, há í fitusýrum (Omega) og flokkast sem „ofurfæða“ (Super-food).
Áskorunum í loftslagsmálum og fæðuöflun heimsins verður ekki mætt með auknum landbúnaði einum og sér heldur mun aukið fiskeldi spila lykilhlutverk í að efla fæðuöflun og þörf heimsins á næstu áratugum. Samkvæmt Matvælastofnun Sameinuðu þwjóðanna (FAO) mun heimsbyggðin þurfa að tvöfalda matvælaframleiðslu sína fyrir árið 2050 til að mæta mannfjöldaaukningu jarðarinnar en nú þegar koma meira en 50% af framleiddum fiskafurðum í heiminum frá fiskeldi. Á Íslandi eru einu bestu aðstæður heims til ræktunnar á laxi í sjó vegna hagstæðs hitastigs sjávar í fjörðum landsins. Laxeldi á Íslandi hefur það að markmiði að hafa umhverfislegar, efnahagslegar og félagslegar aðstæður að leiðarljósi í framtíðarþróun á sjálfbærni laxeldis sem nú þegar hefur staðfest gildi sín sem kjölfesta í samfélagslegri uppbyggingu á Íslandi. Með aukinni fiskneyslu tökum við umhverfislega ábyrgð og minnkum okkar persónlega kolefnisfótspor. Mesta losun koltvísýrings þegar kemur að laxeldi tengist framleiðslu fiskifóðurs og er laxeldið sjálft því umhverfisvænasta próteinframleiðsla til manneldis sem á sér stað í öllum matvælaiðnaði. Laxar leggja mikla áherslu á starfa í sátt við náttúru og samfélögin sem við störfum í. Virkt innra og ytra eftirlit er með starfsemi Laxa þar sem lögð er áhersla á sjálfbærni í allri starfsemi fyrirtækisins.
Mannauður
Í starfsmannahópi Laxa starfar öflugur og fjölbreyttur hópur fólks með mikla reynslu og þekkingu á sínu sviði. Mikil áhersla er lögð á menntun og þjálfun starfsfólks þar sem allir eru hvattir til að sérhæfa sig á sviðum sem tengjast fiskeldi með stuðningi Laxa.
Mikil starfsánægja mælist innan fyrirtækisins og kappkostar fyrirtækið við að viðhalda ánægju, metnaði og framsækni. Um sextíu starfsmenn starfa hjá Löxum og mun sá fjöldi aukast á næstu árum með aukinni framleiðslu fyrirtækisins.
Framtíðarsýn
Laxar hafa vaxið með miklum hraða á undanförnum árum og stefnir á frekari uppbyggingu á næstu árum. Stefna fyrirtækisins er að byggja upp leiðandi eldisfyrirtæki þar sem þekking og tækni er í fyrirrúmi en jafnframt fjárhagslegur styrkur til að takast á við áskoranir. Meginstef starfseminnar er að byggja upp sjálfbæra starfsemi í sátt við umhverfi og samfélag.
© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd