Löndun ehf. er löndunarþjónusta sem sinnir viðskiptavinum í Reykjavík og í Hafnarfirði.
Sumarið 1987 var Löndun ehf. stofnað. Helsta ástæða stofnunar fyrirtækisins var þörf fyrir
þjónustu í sjávarútvegi eftir að fiskverð var gefið frjálst og allur fiskur á Íslandi átti að seljast á markaði. Þetta byrjaði með löndun úr ferskfisktogurum og bátum fyrir nýstofnaðan fiskmarkað í Reykjavík sem hét Faxamarkaðurinn hf. Þjónustusamningur var gerður á milli þessara fyrirtækja. Fljótlega kom í ljós að þörfin fyrir löndunarþjónustu var meiri. Frystiskip á bolfisk- og rækjuveiðum vantaði þjónustu við að landa frystum fiski og rækju sem var komið fyrir í frystigámum frá öðru hvoru skipafélaginu, Eimskip eða Samskip.
Í lok fyrsta sumarsins voru 10 manns við störf hjá Löndun ehf.
Starfsemin
Fyrsta frystilöndunin fór fram í september 1987. Pétur Jónsson RE 69 kom til hafnar í Sunda-höfn með fullfermi af frystri rækju úr sinni fyrstu veiðiferð. Á eftir komu systurskip Péturs Jónssonar, Hákon ÞH og Helga RE. Í janúar 1988 var gerður fyrsti þjónustusamningur við útgerð í Þorlákshöfn sem hér Ljósavík og gerði út frystitogarann Gissur ÁR 6. Á sama tíma hófst einnig þjónusta Löndunar ehf. við útgerðarfélagið Ögurvík sem gerði þá út frystitogarann Frera RE 73 og síðan kom Vigri RE 71 til sögunnar.
Árið 1990 hófst losun á timbri og stáli fyrir Húsasmiðjuna. Árið 1992 er undirritaður þjónustu-samningur við Samskip. Hann fól í sér að Löndun tók að sér að landa úr öllum togurum sem fluttu afla sinn með Samskipum. Í apríl 1993 þjónustaði Löndun ehf. sína fyrstu tvo rússnesku frystitogara með því að gera þjónustusamning við flutningafyrirtækið Jökla hf. sem sá um flutninga á frosinni vöru fyrir Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna. Löndun ehf. þjónustaði Samherja hf. lengst af þegar fyrirtækið var með skipin sín fyrir sunnan land. Þjónustan hófst vorið 1993 þegar skipin komu af úthafskarfa veiðum af Reykjaneshrygg. Þjónusta við útgerðarfélagið Brim hf. hófst 2004 með löndunum úr Guðmundi í Nesi RE 13 sem kemur inn að morgni dags með 400-500 tonn af frosinni grálúðu og fer út að kvöldi með vel þrifna tóma lest, umbúðir í umbúðalestinni og búrið fullt af mat. Árið 2006 gerði Löndun ehf. þjónustusamning við Eimskip og hóf að landa úr skipum á vegum fyrirtækisins, aðallega í Hafnarfirði. Umsvif fyrirtækisins jukust umtalsvert við þessa stækkun og hefur fyrirtækið átt langt og farsælt samstarf við Eimskip. Landanir á vegum fyrirtækisins fara fram á Skarfabakka og Vogarbakka í Reykjavík svo og í Hafnarfirði en þar hafa flestar landanirnar farið fram síðustu ár. Fyrirtækið er með skrifstofu og starfsaðstöðu á Vogarbakka í Reykjavík og svo er verið að reisa 800 fermetra stálgrindarhús í Hafnarfjarðarhöfn sem meðal annars á að hýsa starfsemi fyrirtækisins.
Starfsfólk og stjórnendur
Fastir starfsmenn fyrirtækisins eru um 20 og framkvæmdastjóri er Þorsteinn Gunnlaugsson. Til viðbótar er félagið með um 20 starfsmenn til viðbótar á útkallslista.
Stjórnarformaður er Óskar Óskarsson.
© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd