Málning ehf

2022

Málning hf. var stofnað hinn 16. janúar 1953. Að stofnuninni stóðu fjölmargir aðilar, en þar voru fremst í flokki afkomendur Péturs Guðmundssonar í Málaranum. Fyrsta aðsetur félagsins var gamalt skólahúsnæði við Kársnesbraut 32 í Kópavogi. Með tímanum var húsnæðið aðlagað að rekstrinum og stækkað með viðbyggingum. Árið 1981 var söludeild og lager flutt upp á Lyngháls 2, en framleiðslan og önnur starfsemi hélt áfram á gamla staðnum. Þann 13. júlí 1987 dundi mikið reiðarslag yfir starfsemi Málningar þegar byggingin á Kársnesbrautinni gjöreyðilagðist í eldsvoða. Hér var um mikið tilfinningalegt og fjárhagslegt tjón að ræða. Hráefni og vörur fyrir tugi milljóna urðu eldinum að bráð og húsnæðið upp á 2000 fm varð rústir einar. En með miklu snarræði tókst að verja helstu framleiðsluvélarnar og gera þær tilbúnar til notkunar. Með samhentu átaki starfsfólks og eigenda félagsins tókst að hefja framleiðslu aðeins nokkrum dögum eftir brunann, fyrst á Lynghálsi 2 en frá október 1987 á Funahöfða 9. Þann 19. október 1998 flutti lager og söludeild starfssemi sína í glæsilegt þriggja hæða stórhýsi við Dalveg 18 í Kópavogi. Skömmu seinna eða 1. janúar 1999 flutti önnur starfsemi í húsið og var þá loksins allt komið undir eitt þak hjá Málningu hf. Húsið er hannað af Ingimundi Sveinssyni arkitekt. Fljótlega eftir stofnun félagsins var farið að framleiða og markaðssetja Spred Satin, sem er fyrsta vatnsþynnta málningin sem sett er á íslenskan markað. Hér var um mikið framfaraspor fyrir íslenska neytendur, sem þekktu ekkert annað enn mengandi olíumálningar á þessum tíma. Framleiðslu á Spred Satini lauk árið 1973. Þá tóku við hinar fjölbreyttu Kópalvörur, sem enn í dag eru stór hluti af vöruúrvali fyrirtækisins.

Fyrstu auglýsingar Málningar eru frá 1953.

Málning hf. hefur frá fyrstu tíð lagt mikla áherslu á vöruþróun og rannsóknir. Áhersla hefur verið lögð á gott samstarf við erlenda framleiðendur eins og Jotun í Noregi, Loba í Þýskalandi, Becker Acroma í Noregi o.fl. Málning hf. er eitt málningarfyrirtækja á Íslandi sem tekur virkan þátt í sameiginlegum rannsóknarverkefnum með rannsóknarstofnunum innlendum, sem erlendum. Innlend vöruþróun fyrir hinar séríslensku aðstæður er samt grunnurinn að flestum vörum félagsins. Má þar nefna vörulínur eins og Kópal innahússmálningu, Steinvara utanhússmálningu, viðarvarnarfjölskylduna Kjörvara og þakmálningarnar Þol og Akrýl Þol. Nánari upplýsingar um þessar og fleiri vörutegundir er að finna á heimasíðu fyrirtækisins. Málning hf. hefur í gegnum tíðina selt nokkuð af málningu til ýmissa landa eins og Englands, Færeyja og Lettlands. Málning hf. á í samstarfi við færeyjska fyrirtækið Kveik, sem framleiðir eftir framleiðsluleyfi frá Málningu hf.
Í byrjun árs 2010 festi Málning hf. kaup á stærstum hluta reksturs Slippfélagsins í Reykjavík, með þeim kaupum efldist fyrirtækið enn frekar og er eina framleiðslufyrirtækið á Íslandi í málningariðnaði.

Mannauður
Málning hf. hefur ávallt lagt kapp á að hafa innan sinna vébanda gott og vel menntað starfsfólk. Hjá fyrirtækinu starfa um þessar mundir 80 manns. Stjórnarformaður Málningar hf. er Valdimar Bergstað og framkvæmdastjóri er Baldvin Valdimarsson.

Framleiðsluvörur
Málning hf. er eina málningarverksmiðjan á Íslandi og notar alfarið eigin uppskriftir við framleiðsluna.

Grænt bókhald
Málning hf. hefur haldið Grænt bókhald frá 2003, eins og fyrirtækjum sem hafa starfsleyfi frá Umhverfisstofnun er gert skylt. Fylgt er reglugerð nr. 236/1990 og nr. 921/2000 ásamt síðari breytingum. Í Grænu bókhaldi er farið yfir notkun Málningar hf. á hinum ýmsu auðlindum, sem tengjast málningarframleiðslu. Sjá má skýrslur seinustu þriggja ára á heimasíðu fyrirtækisins.

Umhverfisstefna Málningar hf.
Umhverfismál hafa frá fyrstu tíð verið hátt skrifuð hjá Málningu, t.d. var félagið fyrst á markað með vatnsþynnta málningu rétt eftir stofnun þess 1953. Hér fylgja þeir punktar, sem félagið mun hafa að leiðarljósi í fyrstu umhverfisstefnu þess. Byggingar, umhverfi og starfsaðstaða skal vera til fyrirmyndar hjá fyrirtækinu. Það er markmið að allar aðstæður séu á þann veg að vinnuslys heyri sögunni til. Við vöruþróun er lögð höfuðáhersla á að færa sem flestar vörur að Svansmerkinu og draga sem mest úr notkun hættulegra efna og hætta notkun eiturefna. Í framleiðslunni verður ávallt leitast við að tileinka sér hreina framleiðslutækni, þar sem markið er sett á góða nýtingu á orku, vatni og hráefnum. Stefnt er að því að rýrnun á hráefnum og umbúðum sé ávallt undir 2% af ársnotkun. Sorp og spilliefni verða flokkuð í samræmi við óskir förgunaraðila. Fyrirtækið mun leitast við, að lágmarka þessa flokka. Haldið verður bókhald yfir magn sorps og spilliefna, þ.a. hægt verður að bera saman niðurstöður á milli ára. Sjá Grænt bókhald. Fyrirtækið mun fylgjast vel með þróun, breytingum á lögum og reglugerðum er varða umhverfismál. Allar breytingar er varða framleiðslu og sölu á málningu munu verða teknar upp hið fyrsta. Stjórnendur fyrirækisins munu leitast við að efla umhverfisvitund starfsmanna og beina viðskiptavinum inn á braut umhverfisvænna vara. Við innkaup tækja og rekstrarvara verður lögð áhersla á að velja vörur, þ.a. þær hafi sem minnst áhrif á umhverfið.

Leyfi
Málning hf. fékk fyrst íslenskra málningarfyrirtækja starfsleyfi í júní 1998. Þann 13. nóvember 2018 afhentu fulltrúar Umhverfisstofnunar Málningu hf. Svansleyfi fyrir margar gerðir af innanhússmálningu í framleiðslu fyrirtækisins. Umhverfisstofnun hefur veitt fyrirtækinu starfsleyfi fyrir rekstri málningarverksmiðju að Dalvegi 18 Kópavogi, sem gildir til 20. júní 2032. Öllum ákvæðum þess hefur verið fylgt til hins ýtrasta og allar eftirlitsmælingar verið vel innan þeirra marka, sem settar eru í leyfinu.

Dalvegur 18
201 Kópavogi
5806000
Þjónustuflokkar
Upplýsingar
Fyrirtækjaskrá Staðsetning á korti

Ísland, atvinnuhættir og menning

© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd