Náttúrustofa Vestfjarða

2022

Náttúrustofa Vestfjarða (NAVE) hóf starfsemi í ársbyrjun 1997. NAVE er alhliða rannsóknar- og þjónustustofnun á Vestfjörðum. Náttúrustofan starfar eftir lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og Náttúrustofur og er rekin af sveitarfélögum á Vestfjörðum með stuðningi ríkisins. Verkefni náttúrustofunnar er öflun og miðlun upplýsinga um náttúru Vestfjarða. Einnig er hlutverk NAVE að gera viðeigandi gögn aðgengileg þeim sem á þurfa að halda. Náttúrustofa Vestfjarða tekur að sér margvísleg verkefni á þessu sviði fyrir sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir og einkaaðila ásamt því að móta og framkvæma sínar eigin rannsóknir.

Hlutverk stofunnar
1. að safna gögnum, varðveita heimildir um náttúrufar og stunda vísindalegar náttúru-rannsóknir, einkum í þeim landshluta þar sem náttúrustofan starfar,
2. að stuðla að æskilegri landnýtingu og náttúruvernd og veita fræðslu um umhverfismál og náttúrufræði og aðstoða við gerð náttúrusýninga,
3. að veita náttúruverndarnefndum á starfssvæði stofunnar upplýsingar og ráðgjöf á verksviði stofunnar samkvæmt ákvörðun stjórnar náttúrustofu hverju sinni,
4. að veita ráðgjöf á verksviði stofunnar, sinna rannsóknum og sjá um vöktun gegn greiðslu að beiðni sveitarfélaga, ríkis eða stofnana þeirra, einstaklinga, fyrirtækja eða annarra aðila,
5. að annast almennt eftirlit með náttúru landsins, sbr. 7. gr. náttúruverndarlaga, nr. 44/1999, einkum í þeim landshluta þar sem NAVE starfar; Náttúruvernd ríkisins skal gera samning um slíkt eftirlit við náttúrustofur sem staðfestur er af ráðherra. Heimilt er náttúrustofu að gerast aðili að sýningarsafni, en fjárhagur slíks safns og stofunnar skal vera aðskilinn.

Stjórn stofunnar
Formaður: Smári Haraldsson, líffræðingur. Meðstjórnendur: Guðrún Anna Finnbogadóttir, verkefnastjóri og Sigríður Gísladóttir, dýralæknir. Varamenn: Þorgeir Pálsson sveitarstjóri, Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri og Bragi Þór Thoroddsen sveitarstjóri.

Verkefni stofunnar
Vísindarannsóknir í tengslum við líffræðilegan fjölbreytileika; vistfræði íslenskra fjarða; gróðurfar, fugla, ferskvatnsvistkerfi og áhrifa fiskeldis á sjávarvistgerðir. Einnig stundar stofnunin fornleifarannsóknir og landslagsgreiningar og rekur Náttúrugripasafn Bolungarvíkur þar sem að stofan leggur áherslu á miðlun vísindalegrar þekkingar á skiljanlegan hátt til almennings.

Starfsmenn stofunnar
Sigurður Halldór Árnason, M.Sc., forstöðumaður, Cristian Gallo, M.Sc., Hulda Birna Albertsdóttir, Hafdís Sturlaugsdóttir, M.Sc., Friðbjörg Matthíasdóttir, Guðrún Steingrímsdóttir, Margrét Hrönn Hallmundsóttir, Margrét Thorsteinsson og Kristín Sylvía Ragnarsdóttir.

Aðsetur
Náttúrustofa Vestfjarða er til húsa að Aðalstræti 12, 415 Bolungarvík. [email protected]

Ísland, atvinnuhættir og menning

© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd