Norðurslóð var opnað 28. janúar 2017. Upphaf og hugmynd Norðurslóðasetursins er safn stofnanda þess, Arngríms B. Jóhannssonar af aldagömlum Íslandskortum eftir þekkta kortagerðarmenn, þar sem elsta kortið er líklega um 300-400 ára. Safninu var fært að gjöf hluti af lífsstarfi Hafsteins Hólm Þorsteinssonar sem samanstendur af uppstoppuðum dýrum. Sögur, myndir og munir eru frá Stofnun Vilhjálms Stefánssonar heimskautafara og fræðast má um ferðir hans um norðurslóðir, einnig eru frásagnir af ferðum Vigfúsar Sigurðssonar með Wegener og Kock yfir Grænlandsjökul. Norðurslóðasetrið gefur okkur góða innsýn í lífið á norðurslóðum, þar á meðal hluta af strandmenningu Eyjafjarðar. Fræðast má um líf Inúíta, um báta/skip og flugvélar, auk gamalla siglingatækja, einnig eru sýnishorn af fatagerð frá fyrri tíð.
Sýningar Norðurslóða
Sýningar Norðurslóða eru 11 talsins og segja frá áhugaverðum sögum í máli og myndum auk þess að vera með glæsilegt safn af sögulegum gripum.
Landnám Íslands – Fjallar um landnám Ingólfs Arnarsonar árið 840 sem kom fyrstur landnáms- manna til Íslands með búsetu í huga.
Dýralíf á Norðurslóðum – Á sýningunni má sjá ótal uppstoppuð dýr, meðal annars refi, seli og hreindýr. Auk þess má sjá alla varpfugla Íslands, eða um 250 tegundir.
Kortasafn Arngríms – Glæsilegt safn margvíslegra korta, en þar má meðal annars finna Guð-brandskort, margvísleg land- og sjókort, flugkort og myndir frá um 400 km hæð úr gervitunglum.
Grænlandsfarinn Vigfús Sigurðsson – Grænlandsleiðangurinn var farinn 1912 og var á vegum Danans J.P. Koch. Íslendingurinn Vigfús Sigurðson, síðar kallaður Grænlandsfari, var með í för. Sýningin segir frá leiðangrinum í máli og myndum.
Vigfúsarstofa – Hér er sagt í máli og myndum frá ferðum Vigfúsar. Dóttursonur Vigfúsar, Vigfús Geirdal, sagnfræðingur og kennari og kona hans Sigrún ásamt fjölskyldu, varðveittu myndir og gögn, sem þau góðfúslega lánuðu til sýningarinnar.
Landkönnuðurinn Vilhjálmur Stefánsson – Nafn Vestur-Íslendingsins Vilhjálms Stefánssonar er órofa tengt norðrinu og könnun þess. Hann er þekktastur fyrir að hafa ferðast um heimskautasvæði Kanada í fimm ár óslitið (1913-1918) og stundað mannfræðirannsóknir og landkönnun, en alls dvaldi hann um 12 ár á þessum slóðum.
Heimskautslöndin unaðslegu – Lýsir með listrænum hætti lífi, starfi og hugsjónum Vilhjálms Stefánssonar en er um leið kynning á umhverfi, menningarheimum og málefnum norðurslóða.
Hundasleðaferð – Hér er boðið upp á upplifun á hundasleða. Á stórum skjá má sjá hunda-sleðaferð um Grænland og gefst fólki tækifæri til að setjast á sleða og upplifa tilfinninguna.
Handverkssýning – Sýning á íslensku handverki, einkum fatnaði, sem einkennt hefur íslenska menningu í gegnum tíðina. Unnið af hópi handavinnufólks á Norðurlandi.
Flug á Norðurslóðum – Sýning sem veitir innsýn í upphaf flugs á norðurslóðum á 20. öld.
Strandlíf í Eyjafirði – Sýning sem fjallar um strandmenningu í Eyjafirði í gegnum tíðina. Sagt er frá í máli og myndum en einnig er þar að finna áhugaverð skipalíkön.
© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd