Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn á ábyrgan og umhverfisvænan hátt til allra landsmanna. Markmiðið ON er að gæta hagsmuna auðlinda landsins og viðskiptavina fyrirtækisins með sjálfbærni að leiðarljósi. Þar með styður fyrirtækið við nýsköpun, ábyrga nýtingu auðlindarinnar og flýtir fyrir orkuskiptum með minna vistspori, samfélaginu öllu til heilla.
ON og samfélagið 2020
Við hjá Orku náttúrunnar vinnum að þeim Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem snúa að starfseminni, við hlustum á fólk og segjum okkar skoðanir. Afraksturinn eru margskonar verkefni sem endurspegla þá samfélagsábyrgð sem við viljum sýna. Hér höfum við tekið saman nokkur dæmi frá árinu 2020.
Ánægðustu viðskiptavinirnir
Af viðskiptavinum raforkusala á Íslandi eru þau sem kaupa af Orku náttúrunnar ánægðust. Þetta urðu niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2019, sem voru kynntar af Stjórnvísi snemma árs 2020. Það sama var raunar uppi á tengingum í janúar 2021, annað árið í röð og þriðja árið samtals. „Þetta er frábær árangur sem næst aldeilis ekki af sjálfu sér. Þetta er afrakstur mikillar vinnu okkar allra því til að ná svona árangri þarf öll keðjan að vera traust, allt frá auðlindarannsóknum yfir í framleiðslu og sölu á rafmagni og ekki síst samskiptin við alla okkar viðskiptavini og samstarfsfólk,‘‘ segir Berglind Rán framkvæmdastýra Orku náttúrunnar um viðurkenninguna.
Hröð uppbygging hleðslustöðva
Rafvæðing samgangna er ekki bara góð fyrir umhverfið heldur ekki síður fyrir budduna. Á Covid-árinu 2020, þegar margir ferðuðust innanlands, var nýtingin á hleðsluneti ON, sem byggt hefur verið upp frá 2014, meiri en nokkru sinni. Í fyrsta sinn voru nýskráðir nýorkubílar fleiri en hefðbundnir. Þessum nýju þörfum þarf að sinna og þar er ON í fararbroddi.
Á árinu 2020 setti ON upp fyrstu 150 kílóvatta hleðslustöðvarnar hér á landi en þær sinna einkum þörfum eigenda langdrægustu rafbílanna.
„Gáfnaljós“
Þó Íslendingar séu allra þjóða ríkastir af rafmagni gefur það okkur ekkert leyfi til að sóa því. LED-ljósabúnaður þarf brot af þeirri orku sem hefðbundnar perur nota og það skiptir svo sannarlega máli þegar verið er að lýsa heilu borgirnar. Nýi búnaðurinn, sem er sem óðast að leysa þann eldri af hólmi, hefur líka þá kosti að fjarstýringar á honum og fjarvöktun hans verður auðveldari og svo er því líka betur stýrt hversu mikilli birtu er beint til jarðar og nákvæmlega hvert. ON rekur götulýsingu fyrir mörg sveitarfélög, Vegagerðina og líka lóðalýsingu fyrir nokkur fyrirtæki.
Góður gestur flytur heiminum fréttir
Við erum orðin vön því að ýmsir útlendingar falli í stafi yfir jarðhitanýtingu Íslendinga. Hvernig þessi auðlind, sem öldum saman var táknmynd ógna nátttúrunnar, varð einhver mesta blessun landsmanna með tilkomu hitaveitnanna. ON er stærsta jarðhitafyrirtæki landsins. Það er mikilvægt að fyrirtæki í þeirri stöðu leiði nýsköpun í jarðhitanýtingu, sé í sífellu að leita nýrra leiða, nýta betur náttúrunnar gæði og endurnýta það sem til fellur. Carbfix-aðferðin, sem Orka náttúrunnar nýtir í Hellisheiðarvirkjun, hefur vakið heimathygli og sumarið 2020 kom stórleikarinn Zac Efron í heimsókn í virkjunina til að kynna sér hvernig koldíoxíði úr jarðgufunni er fargað með því að breyta því í stein. Afrakstur heimsóknarinnar nýtti Efron í fyrsta þátt nýrrar sjónvarpsþáttaraðar sem hann sér um, Down to Earth.
Förgun koldíoxíðs
ON hefur verið í fararbroddi í nýsköpun og þróun á sviði loftslags- og umhverfismála jarðgufuvirkjana undanfarinn áratug. Náið samstarf við Carbfix hefur þar verið lykilatriði. Á meðal verkefna sem þegar hafa skilað árangri eru; minnkun losunar koltvíoxíðs og brennisteinsvetnis frá Hellisheiðarvirkjun með bindingu þessara jarðhitalofttegunda í stein,
undirbúningur að minni losun frá Nesjavallavirkjun og tímasetning kolefnishlutlausrar Hellisheiðarvirkjunar, samstarf við svissneska fyrirtækið Climeworks um hreinsun og bindingu koltvíoxíðs úr andrúmslofti á Hellisheiði. Risaskref voru stigin á árinu 2020 í loftslagsmálum þegar samið var við svissneska fyrirtækið Climeworks um að það nýtti innviði ON við Hellisheiðarvirkjun og þekkingu Carbfix til að breyta koldíoxíði fönguðu beint úr andrúmsloftinu í grjót. Auk þess hefur förgun alls koldíoxíðs sem kemur upp með gufunni sem nýtt er í virkjuninni verið tímasett. Fullhreinsun frá Hellisheiði verður komin í gagnið fyrir árslok 2024.
Jarðhitagarður ON
ON lærðist af þróun Carbfix verkefnisins að mikilvægt er að geta prófað og þróað nýjar hugmyndir tengdar jarðhitanýtingunni í nábýli við virkjun. Svo er frábært að geta byggt upp sannreyndar viðskiptahugmyndir á sama stað. Það er hugmyndin á bak við Jarðhitagarð ON við Hellisheiðarvirkjun í Ölfusi. Honum tilheyrir tilraunasvæði við virkjunarvegg og svo athafnasvæði steinsnar frá. Það fellur nefnilega ýmist nýtilegt til við orkuvinnsluna og aðföng má samnýta með henni. Á meðal þess sem eru hugmyndir um, er lofandi eða þegar gefið góða raun er; Kolefnisförgun. Kísiltaka úr jarðhitavökva í heilsuvörur. Vetnisvinnsla.
Þörungarækt. Kolefnisnám úr andrúmslofti til förgunar. Ylrækt. Böð.
30 ára farsæl nýting
Haustið 2020 voru 30 ár frá því Nesjavallavirkjun var tekin í notkun. Reksturinn á Nesjavöllum hefur verið einkar farsæll og skipti bygging hennar sköpum fyrir viðgang hitaveitunnar á höfuðborgarsvæðinu. Árum saman sá hún höfuðborgarsvæðinu fyrir meira en helmingi alls þess heita vatns sem nýtt var til húshitunar, í sundlaugarnar og snjóbræðslukerfi suðvesturhornsins.
© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd