Ekki eru þau mörg íslensku fyrirtækin sem geta státað af því að hafa náð 100 ára aldri hvað þá 110 ára aldri en eitt þeirra er verslunin Poulsen ehf. sem hélt upp á aldarafmæli sitt árið 2010. Reksturinn nær inn á mörg svið en frá upphafi hefur þungamiðja starfseminnar legið í innflutningi og sölu á varahlutum í bifreiðar og iðnvélar. Eftir sameiningu við fyrirtækið Orka – Snorri G. Guðmundsson hf. árið 2005 hefur bæst við umsvifamikið starfssvið rúðuísetninga, bílaréttinga og bílasprautunar. Hjá Poulsen ehf. starfa í dag um 40 manns.
1910 – Poulsen stofnað
Valdimar Poulsen, danskur járnsteypumeistari, stofnaði fyrirtækið árið 1910. Hann kom hingað upphaflega til að starfa að uppbyggingu Járnsteypu Reykjavíkur en hóf einnig viðskipti með eldfastan leir og ýmsa málma.
1926 – Smásöluverslun að Klapparstíg 29
Valdimar opnar smásöluverslun að Klapparstíg 29 en þar var boðið upp á alls kyns vélar og varahluti ásamt ýmsum smíðaverkfærum.
1946 – Nýr aðaleigandi
Nokkrum árum eftir andlát Valdimars árið 1946 kom Ingvar Kjartansson, kaupmaður, inn í reksturinn og keypti þar helmingshlut. Hann varð síðar forstjóri fyrirtækisins til margra ára og aðaleigandi þess frá árinu 1963 og til dauðadags árið 1990.
2001 – Nýir eigendur
Frá árinu 2001 hefur Poulsen ehf. verið í eigu hluta af fjölskyldu Matthíasar Helgasonar og Elínar Ragnarsdóttur. Hún hafði þá rekið fyrirtækið Bílanaust í tæp 40 ár.
2001 – Poulsen fer í Skeifuna
Eftir eigendaskiptin fluttist reksturinn í núverandi húsnæði að Skeifunni 2 í Reykjavík en gólfflötur þess er um 4000 fermetrar. Fram til þess tíma höfðu baðinnréttingar verið fyrirferðamiklar en sá hluti var seldur út úr fyrirtækinu þar sem hann samrýmdist illa öðrum þáttum starfseminnar.
2005 – Kaup á Orka-Snorri G. Guðmundsson (OSG)
Óhætt er að segja að umfangsmesta fjárfestingin, að því leyti, hafi átt sér stað árið 2005 þegar gengið var frá kaupum á fyrirtækinu Orka-Snorri G. Guðmundsson (OSG). Með því bættust við um 20 starfsmenn ásamt nýjum starfsviðum, t.d. innflutningi á Pilkington bílrúðum3M slípivörum, DuPont bílalökkum sem síðar breyttist í Spies Hecker ásamt fjölbreyttri flóru varahluta og verkfæra.
2005 – Kaup á rekstur Framrúðunnar
Í beinu framhaldi keypti Poulsen síðan rekstur Framrúðunnar að Viðarhöfða 2 og með því bættist við nýr þjónustuliður bílrúðuísetninga. Meðfram öllu þessu hefur Poulsen ehf. einnig flutt inn og selt heita potta, spa-potta og litlar sundlaugar, en sá þáttur er aðeins lítil hluti rekstrarins. Ísetningar og vörumóttaka fyrir bílrúður ásamt sýningarsal fyrir heita potta er með aðsetur að Grensásvegi 3.
2010 – Poulsen 100 ára
Ekki eru þau mörg íslensku fyrirtækin sem geta státað af því að hafa náð 100 ára aldri en eitt þeirra er verslunin Poulsen ehf. sem hélt upp á aldarafmæli sitt árið 2010. Reksturinn nær inn á mörg svið en frá upphafi hefur þungamiðja starfseminnar legið í innflutningi og sölu á varahlutum í bifreiðar og iðnvélar.
2020 – Poulsen 110 ára – COVID-19
Á árinu 2020 fagnar Poulsen 110 ár afmæli sínu við einar þær óvæntustu og einkennilegustu aðstæður sem upp hafa komið í íslensku samfélagi allt frá stofnun fyrirtækisins. COVID-19 kórónuveirufaraldurinn hefur sett daglegt líf flestra úr skorðum og haft gífurleg efnahagsleg áhrif. Á þessu merka ári 2020 setti Poulsen nýja vefsíðu, www.poulsen.is í loftið sem er vefverslun ásamt því að gefa góðar upplýsingar um vöru og þjónustu.
© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd