Um mitt ár 1988 komu saman nokkrir atorkusamir menn og ákváðu að stofna fyrirtæki sem þjónaði sjávarútveginum. Það var niðursveifla í efnahagslífinu en menn töldu að rekstur sem þyrfti að takast á við og lifa erfiðleika mögru áranna hlyti að njóta þess þegar betur áraði. Stofnendur voru 6 en fljótlega fækkaði í hluthafahópnum í 3, sem enn eru eigendur fyrirtækisins. Þeir eru Björn H. Jóhannesson, Kristinn Jónsson og Ragnar G. Gunnarsson. Fyrirtækið hlaut nafnið Reki ehf.
Starfsemin
Starfsemin hófst í 25 fm húsnæði á Fiskislóð 90, 101 Reykjavík (annað húsnúmer í dag). Í upphafi var einn starfsmaður en fljótlega bættist annar við. Megináhersla var lögð á þjónustu við smábátasjómenn. Þungamiðja starfseminnar fyrstu árin laut að sölu og þjónustu á hinum þekktu SABB bátavélum frá Noregi auk ýmiss annars búnaðar fyrir bátana. Reki ehf. tók líka þátt í nýsmíðaævintýrinu í kringum 1990 og lét fyrirtækið smíða 5 og 10-12 tonna plastbáta hjá SELFA bátsmiðjunum í Þrándheimi. Áður en yfir lauk voru fluttir inn um 20 bátar.
Aukin umsvif kölluðu á stærra húsnæði og í árbyrjun 1992 var flutt á Grandagarð 5 einnig í 101. Fyrst á neðri hæðina en síðan var allt húsið yfirtekið. Þáttaskil urðu í rekstrinum á árunum 1992-3. Með síauknum fjölda þjónustufyrirtækja í smábátageiranum og augljósri fækkun þessarra báta var ákveðið að færa út kvíarnar og lögð aukin áhersla á þjónustu við stærri skip og báta. Það gekk eftir og var sérstök áhersla lögð á vélarúmið og búnaði tengdum því. Fyrirtækinu tókst að ná góðum viðskiptatengslum við birgja víða um heim og skapa sér gott nafn bæði á markaði hér og eins meðal birgja.
Sérhæfing
Þegar líða tók að aldamótum var ljóst að markaðurinn kallaði á aukna sérhæfingu. Reki ehf. svaraði því kalli með aukinni áherslu á ákveðna vöruþætti án þess þó að kasta öðrum fyrir róða. Árið 2000 var gerður samningur við hinn þekkta síuframleiðanda Donaldson um dreifingu á framleiðslu þeirra á íslenskum markaði. Donaldson er í fararbroddi í í hönnun og framleiðslu síubúnaðar, sérstaklega loftsíubúnaði fyrir atvinnutæki og iðnað. Þessi samningur kallaði á stærra og hentugra húsnæði og 2001 var flutt í húsnæði á Fiskislóð 57-59. Samstarfið við Donaldson hefur gengið mjög vel allt til þessa dags og vegna góðs árangurs hlaut Reki ehf. sérstök verðlaun sem veitt voru árlega einungis 3 fyrirtækjum (af um 150). Verðlaunin heita Dedication to Excellence Award, og var fyrirtækið nefnt Authorized Distributor of the Year 2004.
Fljótlega bættust við fleiri þekktir birgjar í síum, þar á meðal Fleetguard (síudeild Cummins) og Mahle. Það leiddi til stækkunar á viðskiptavinahópi Reka ehf. því síur eru nauðsynlegar í flestum geirum atvinnulífsins. Nú komu mikilvægir viðskiptavinir úr flutningaþjónustu, ferðaþjónustu, iðnaði, verktakastarfsemi og landbúnaði auk sjávarútvegs.
2011 hóf Reki ehf. samstarf við ISRINGHAUSEN, sem er án efa þekktasti framleiðandi í heimi á sætum fyrir atvinnubíla. Og 2016 bættist United Seats við, en þeir framleiða sæti fyrir minni vélar og tæki. Auk ofangreinds býður Reki ehf. einnig upp á sjófittings, sjósíur, kolþétti fyrir dælur, rúðuþurrkur frá Exalto, dælur fyrir smurefni, olíur og vatn frá MARCO, sjódælur frá IFP og Liverani svo eitthvað sé nefnt.
Aðsetur
Þegar leið á annan áratuginn var ljóst að staðsetning fyrirtækisins var ekki lengur hentug fyrir viðskiptavinina. Árið 2015 flutti Reki ehf starfsemi sína í tæplega 700 fm húsnæði á Höfðabakka 9, 110 Reykjavík. Þar er gott aðgengi og rúmgóð aðstaða.
Stefna
Í dag hefur Reki ehf. skapað sér sterka stöðu á markaði, sérstaklega í síum og síubúnaði fyrir skip, atvinnutæki, atvinnubíla og iðnað. Grunnurinn er stór lager og mikil þekking. Ennfremur er sérhæfing í bílstjórasætum, kolþéttum og ýmsum búnaði fyrir skip og báta.
Í stefnumótun fyrirtækisins er þungamiðjan áhersla á staðfest gæði þess búnaðar og varahluta sem boðið er upp á. Þjónusta og þekking er í öðru sæti ásamt lagersetningu og í þriðja sæti er áherslan á að bjóða framangreindan búnað á sem bestu verði.
Stefna fyrirtækisins hefur skilað því ráðandi stöðu á sínum geira markaðarins. Þeim sem reka atvinnutæki er mest í mun að þau starfi eins og þeim er ætlað með sem minnstum frátöfum vegna bilana eða þjónustuhléa. Þeir þurfa að geta treyst því að rekstrarhlutir séu af þeim gæðum sem framleiðandi tækisins gerir kröfu um. Eins þarf aðgengi að rekstarhlutum að vera með þeim hætti að ekki valdi óþarfa rekstrarhléi.
Mannauður
Mjög lítil starfsmannavelta er hjá Reka ehf. Nú eru þrír starfandi í fyrirtækinu og hafa verið lengi. Starfmenn eru: Björn H. Jóhannesson, framkvæmdastjóri, Kristinn Jónsson, vélfræðingur og Tryggvi Kárason, vélfræðingur.
© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd