Sagan
SBA-Norðurleið er rótgróið fyrirtæki sem sérhæfir sig í rekstri hópferðabifreiða. Upphaf fyrirtækisins má rekja til ársins 1960 þegar Jón Egilsson stofnaði Ferðaskrifstofu Akureyrar en undir merkjum hennar var rekin almenn ferðaskrifstofa, strætisvagnar á Akureyri og hópferðabílar. Árið 1980 selur Jón strætisvagnaþjónustuna til Akureyrarbæjar og stofnar Sérleyfisbíla Akureyrar fyrir starfsemi hópferðabíla. 1984 kaupir Gunnar M. Guðmundsson Sérleyfisbíla Akureyrar og hefur síðan þá verið framkvæmdastjóri og stærsti eigandi fyrirtækisins. Árið 2001 stækkar fyrirtækið við kaup á tveimur hópferðafyrirtækjum, Norðurleið og BSH á Húsavík og í kjölfarið breyttist nafn fyrirtækisins í SBA-Norðurleið. Vöxtur fyrirtækisins hefur verið með ágætum og árið 2020 er það komið í hóp stærstu fyrirtækja sinnar tegundar á Íslandi. www.sba.is
Eigendur og stjórnendur
Eigendur SBA-Norðurleiðar eru Gunnar M. Guðmundsson, Guðni Þórólfsson, Ferðaskrifstofan Atlantik, Bílaleiga Akureyrar – Höldur og KEA fjárfestingarfélag. Stjórnun fyrirtækisins hefur að mestu verið í sömu höndum síðustu áratugi en Gunnar M. Guðmundsson hefur verið framkvæmdastjóri, Bergþór Erlingsson markaðsstjóri og Hjördís Úlfarsdóttir skrifstofustjóri.
Aðsetur og aðstaða
Starfsstöðvar SBA-Norðurleiðar eru tvær, höfuðstöðvar á Hjalteyrargötu 10 á Akureyri og útbú í Hjallahrauni 2 í Hafnarfirði. Á báðum starfsstöðvum er fullbúið bifreiðaverkstæði.
Flotinn
Bílaflotinn samanstendur af rúmlega 80 vel útbúnum bifreiðum sem hæfa nánast hvaða tilefni sem er. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að eiga traustar og öruggar bifreiðar sem henta til vetrarferða og ferða um hálendi Íslands. Bílarnir taka 8-73 farþega í sæti og er heildarsætafjöldi flotans 3300 sæti.
Helstu verkefni
Starfsemi SBA-Norðurleiðar er afar fjölbreytt og skiptist upp í eftirfarandi svið:
Almennar hópferðir. Langferðir um landið, bæði fyrir íslenskar og erlendar ferðaskrifstofur og margs konar styttri ferðir fyrir íþróttafélög, skóla og félagasamtök. Að auki er alltaf nokkuð um akstur í tengslum við ráðstefnur, millilandaflug, veislur og aðra hátíðlega viðburði.
Þjónusta við farþega skemmtiferðaskipa. Komum skemmtiferðaskipa til Akureyrar fjölgaði jafnt og þétt árin 2011- 2019. Sumarið 2019 voru komur til Akureyrar nærri 200 og var farþegafjöldinn rúm 160.000. Á vegum SBA-Norðurleiðar fóru um 75.000 skipafarþegar í 1.600 skoðunarferðir með leiðsögn. Flestar ferðanna voru með leiðsögn á ensku og þýsku en einnig var nokkuð um leiðsögn á öðrum tungumálum s.s. á hollensku, ítölsku, frönsku, spænsku og kínversku. Skóla- og fyrirtækjaakstur. Fastur akstur með starfsmenn fyrirtækja og grunnskólanemendur fyrir nokkur sveitarfélög. Áætlunarferðir yfir Kjöl á sumrin. Frá miðjum júní og fram í byrjun september er boðið upp á áætlunarferðir milli Reykjavíkur og Akureyrar um Kjöl. Á leiðinni hafa farþegar tíma til að skoða sig um við Geysi, Gullfoss og á Hveravöllum. Að auki eru átta aðrir viðkomustaðir á leiðinni en þar er einungis stoppað til að hleypa fólki inn og út. Einn þessara staða eru Kerlingarfjöll en útivistarfólk nýtir sér gjarnan aðstöðuna þar meðan það dvelur á hálendinu. Farþegar geta tekið reiðhjól með sér.
Ferðir með leiðsögn fyrir Íslendinga. Í kjölfar Covid-19 varð algjört hrun á þjónustu við erlenda ferðamenn sumarið 2020. Þá var bryddað upp á þeirri nýbreytni hjá fyrirtækinu að bjóða dagsferðir með leiðsögn á íslensku. Tvær áherslur liggja að baki samsetningu ferðanna. Annars vegar að nýta sérútbúinn flota fyrirtækisins til að fara á staði sem erfitt er að komast að á venjulegum fólksbílum. Hins vegar ferðir þar sem gengið er á milli staða þannig að fólk þurfi ekki að hugsa fyrir því að ferja bíla og búnað milli staðanna sem ferðin byrjar og endar á. Markhópurinn er fólk sem vill skoða náttúruperlur og njóta útivistar, ásamt því að fræðast um landið, sögu, menningu og staðhætti. Þessum ferðum var vel tekið þannig að ferðavalið fyrir sumarið 2021 var aukið og einnig boðið upp á nokkrar lengri ferðir.
Akstur nokkurra leiða á Norðurlandi fyrir Strætó. Bifreiðaverkstæði. Það er stefna fyrirtækisins að annast allt viðhald og viðgerðir á eigin bifreiðum. Vegna skorts á hópferðabílum fyrir vetrar- og hálendisferðir hafa starfsmenn verkstæðis undanfarin ár endursmíðað þrettán bíla á nýja undirvagna.
Mannauður og starfsmannafjöldi
Hjá SBA-Norðurleið starfar öflugur hópur fólks með fjölbreytta starfsreynslu og menntun. Innan fyrirtækisins hefur byggst upp haldgóð þekking á skipulagningu aksturs og ferða fyrir fjölbreytta hópa. Starfsmannafjöldi er nokkuð breytilegur eftir árstíðum. Fastráðnir starfsmenn við akstur, verkstæðis- og skrifstofustörf eru um 45. Á sumrin margfaldast starfsmannafjöldinn en þá bætast að jafnaði 170 bílstjórar og leiðsögumenn í hópinn, flestir í hlutastörfum.
© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd