Slökkvilið Akureyrar

2022

Starfssvæði Slökkviliðs Akureyrar nær yfir fjögur sveitarfélög; Akureyrarbæ, þar með talið Hrísey og Grímsey, Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit og Svalbarðsstrandarhrepp. Rekstur slökkviliðs utan Akureyrar byggir á samningum við sveitarfélögin þrjú og formlegt samstarf er við Slökkvilið Grýtubakkahrepps, Slökkvilið Þingeyjarsveitar og Isavia á Akureyrarflugvelli. Íbúafjöldi á starfssvæðinu er tæplega 21.000 og stærð þess er 2.861 km2. SA sinnir lögbundnum verkefnum eins og slökkvistörfum, eldvarnaeftirliti, björgun fastklemmdra og viðbrögð við mengunarslysum. Einnig sér Slökkviliðið um sjúkraflutninga á Akureyri og nágrenni en auk þess sinna sjúkraflutningamenn SA öllum sjúklingum sem fluttir eru með sjúkraflugi á Íslandi. Vaðlaheiðargöng voru opnuð í desember 2018 og tók slökkviliðið þátt í undirbúningi með áætlanagerð og vali á öryggisbúnaði.

Sagan
Árið 1882 kom fyrst til tals hjá bæjaryfirvöldum að stofna slökkvilið, svo vitað sé. Rætt var um það í bæjarstjórn Akureyrar að grennslast fyrir um hversu mikið nothæf slökkvitól myndu kosta. Ekkert varð úr kaupunum í það skiptið. Eftir stórbrunann 1901 þegar 12 hús brunnu til kaldra kola kom slökkviliðið aftur til umræðu. Það var þó ekki fyrr en 31. maí 1904 að bæjarstjórn samþykkti að kaupa fyrstu slökkvitólin og tekið var sex þúsund króna lán til kaupanna. Keypt voru handdæla, slöngur og og strigafötur sem komu til landsins á nýársdag 1905. Þann 6. desember 1905 var Ragnar Ólafsson verslunarstjóri kosinn fyrsti slökkviliðsstjóri Akureyrar, en árinu áður hafði Alþingi samþykkt lög um stofnun Slökkviliðs Akureyrar (SA). Árið 1906 varð aftur stórbruni á Akureyri en þá brunnu sjö hús efst við Strandgötu. Tveimur árum síðar kom reglugerð um eldvarnir og SA sem samþykkt var í stjórnarráðinu 30. nóvember 1908. Miklir brunar voru á Akureyri á þessu árum og oddvitum bæjarins var það mikið kappsmál að efla eldvarnir sem mest.

Fyrsti slökkvibíllinn 1930
Árið 1930 var fyrsti slökkvibíllinn keyptur en hann var árgerð 1923. Fimm árum síðar voru settir upp handbrunaboðar á nokkrum stöðum í bænum og bjöllur á heimilum slökkviliðsmanna. Fram að þessum tíma höfðu tveir menn haft þann starfa með höndum að hlaupa um bæinn og blása í brunalúðra. Fyrsti slökkvibíllinn með vatnstanki kom svo 1947. Eftir það var ekki lengur nauðsynlegt að byrja allt slökkvistarf með slöngulögnum.
Þann 15. janúar 1953 hefjast fastar vaktir á slökkvistöðinni en þá voru fastráðnir fjórir brunaverðir, auk varaslökkviliðsstjóra. Ári síðar kom nýr slökkvibíll ásamt mörgum nýjum tækjum, m.a. fyrstu reykköfunartækin með loftflöskum. Slökkvibíllinn var með háþrýstibyssum, þeim fyrstu hér á landi. Bíllinn er enn í eigu SA.

Sjúkraflutningar á landi og í lofti
SA tók að sér mönnun sjúkrabíla Akureyrardeildar Rauða kross Íslands árið 1968 og hefur það æ síðan verið snar þáttur í starfi slökkviliðsins. Í dag þjónustar SA sjúkraflutninga, með samningi við Heilbrigðisráðuneytið sem miðstöð sjúkraflutninga á Norðurlandi, á Akureyri, Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit og hluta af Þingeyjarsveit. Árið 1956 sömdu Brunavarnir Eyjafjarðar við bæjaryfirvöld um umsjón og eftirlit með slökkvibíl Brunavarna Eyjafjarðar. Eldvarnaeftirlitsmaður var ráðinn í fullt starf 1974. Umsvif slökkviliðsins urðu meiri með þjónustusamningum og með stækkun bæjarfélagsins.
Árið 1993 flutti SA í nýtt rúmlega 1.400 m2 húsnæði við Árstíg 2. Vísir að þjónustu SA í sjúkraflugi byrjaði 1997. Umsvifin í sjúkrafluginu hafa aukist ár frá ári og árið 2019 voru flutningar 770 talsins með 848 sjúklinga. Þann 5. júlí 2000 gerði SA þjónustusamning um rekstur slökkviliðs á Akureyrarflugvelli og þjálfun slökkviliðsmanna í slökkvistörfum Flugmálastjórnar á öllum landsbyggðaflugvöllum. Árið 2011 tók ISAVIA við rekstri slökkviliðs á Akureyrarflugvelli og sinnir Slökkvilið Akureyrar því ekki lengur varðstöðu þar en er hluti af viðbragðsáætlun flugvallarins.

Mikil uppbygging síðustu ár
Í umsjá og eign að meðtöldum fimm sjúkrabílum hefur SA 13 ökutæki alls. Mikil endurnýjun hefur orðið á tækjum og búnaði síðustu ár. Sem dæmi má nefna að árið 2005 voru keypt tvö ökutæki til slökkvistarfa, nýr Scania dælubíll með 3.000 lítra vatnstanki og 5.000 lítra dælu. Árið 2008 kom til slökkviliðsins fullbúinn eiturefnagámur sem leysti af hólmi kerru sem útbúin hafði verið til að bregðast við mengunarslysum. Í maí 2006 varð stækkun á aðstöðu SA úr rúmum 1.400 m2 í rúma 2.000 m2 og er SA þar með komið með allt húsnæðið við Árstíg 2. Starfsstöðvar SA er þrjár, í Árstíg 2, í Grímsey og í Hrísey. Árið 2020 kom til SA nýr slökkvibíll sem er sérútbúinn til notkunar í jarðgöngum. Einnig eru í undirbúningi kaup á nýjum stiga- og körfubíl en það verður í fyrsta sinn sem nýr körfubíll er keyptur á Íslandi utan höfuðborgarsvæðisins.
SA er annað tveggja atvinnuslökkviliða utan suðvesturhornsins sem er skipað atvinnuslökkviliðsmönnum á vakt allan sólarhringinn. Fimm bráðatæknar starfa hjá SA í dag og af 27 slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum í fullu starfi, eru 22 með gild ALS réttindi (séhæfð endurlífgun). Mikið hefur verið lagt í faglega uppbyggingu SA síðustu ár og í kynningu á starfseminni. Til dæmis hefur fésbókarsíða slökkviliðsins verið mikið skoðuð undanfarin misseri og um 3 þúsund manns eru þar fylgjendur og ekki óalgengt að um
7 þúsund manns skoði innlegg og pósta á síðunni.

SA byggir á góðum grunni og stefnir á að vera hér eftir sem hingað til í fararbroddi slökkviliða á Norðurlöndunum. Það veitir þjónustu sem er sambærileg við það besta sem gerist á landinu. Með virkum stuðningi bæjaryfirvalda hefur SA verið tryggt nægt fjármagn til að sinna grunnhlutverki sínu vel. Eldvarnaeftirlitið hefur verið eflt verulega og þar starfar nú öflug deild með möguleika á að þjónusta önnur sveitarfélög. Liðið hefur útvíkkað starfsemi sína með auknu þjónustuframboði og fjölgun starfsstöðva utan Akureyrar. SA er eftirsóknarverður vinnustaður vegna samkeppnishæfra launa, góðrar aðstöðu og góðs starfsanda.
Að hluta byggt á grein eftir Ólaf Búa Gunnlaugsson.

Ísland, atvinnuhættir og menning

© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd