Steypustöðin ehf.

  • 2022
    Samantekt úr Ísland 2020, atvinnuhættir og menning
    [acf_repeater_gallery repeater="company_timeline" gallery="section_images"]

    Saga Steypustöðvarinnar ehf & Loftorku ehf
    Steypustöðin hóf starfsemi árið 1947 og var frumkvöðull í Evrópu í því að framleiða steypu úr steypubifreiðum og varðaði þannig brautina í mannvirkjagerð á Íslandi á mesta uppgangstíma Íslandssögunnar eftir lok síðari heimstyrjaldar. Núverandi félag er byggt á grunni þess félags sem stofnað var 1947.

    Starfsemin
    Meginstarfsemi Steypustöðvarinnar er framleiðsla á blautsteypu, þar sem mikil áhersla er lögð á gæðamál og öll íblöndunar- og fylliefni sem notuð eru í steinsteypu eru samkvæmt kröfum byggingareglugerðar. Stöðugt er unnið að vöruþróun og innleiðingu nýjunga í framleiðslu og í raun má segja að blautsteypa sem framleidd er í dag sé hátæknivara sem verður til með tölvustýrðum framleiðsluferlum sem byrja í steypustöð og enda með dælingu úr steypubíl á byggingastað. Félagið rekur eigin rannsóknarstofu þar sem stöðugt er fylgst með gæðum allra ferla framleiðslunnar. Auk framleiðslu á blautsteypu eru framleiddar hellur og allt sem því tilheyrir í fullkominni helluverksmiðju og félagið rekur múrverslun á Malarhöfða þar sem, m.a. eru seld hágæða múrefni sem félagið flytur inn. Steypustöðin býður einnig uppá þjónustu flotbíla sem þjónusta nýbyggingar og endurbætur um allt land með ílagnarefni í gólf af margvíslegum toga.

    Aðstaðan
    Steypustöðin er með höfuðstöðvar á Malarhöfða. Þar eru skrifstofur og stærsta steypustöð félagsins. Steypustöðin er einnig með steypustöðvar á Selfossi, Vík í Mýrdal, Helguvík og í Borgarnesi. Þjónustugeta félagsins spannar yfir stórt landssvæði og félagið getur þjónað stórum hluta landsmanna í steypu, hellum, múrvörum, einingum og öllu sem viðkemur burðarvirkjum í mannvirkjagerð.

    Kaup á Loftorku
    Um áramótin 2016/2017 keypti Steypustöðin ehf. Loftorku Borgarnesi ehf., en saman eiga þessi fyrirtæki langa sögu sem nær yfir samtals 125 ár í framleiðslu og þjónustu á vörum fyrir byggingamarkaðinn á Íslandi. Fram til þessa höfðu þessi félög, hvort á sínu sviði, verið í fararbroddi í innleiðingum nýjunga í byggingariðnaði í landinu.
    Með kaupum á Loftorku Borganesi útvíkkaði Steypustöðin þjónustunet sitt við sína viðskiptavini umtalsvert í einingum, holplötum, filigranplötum og steinsteyptum rörum. Loftorka Borgarnesi er eins og Steypustöðin rótgróið fyrirtæki, sem stofnað var 1962 og hefur þróast í gegnum árin úr því að vera þjónustuaðili með loftpressu sem nafn þess er dregið af, upp í það að vera ein öflugasta einingaverksmiðja landsins í steyptum einingum og rörum. Starfsemi Loftorku Borgarnesi byggðist fram til 1981 fyrst og fremst á þjónustu við nærsvæðið, framleiðslu á blautsteypu, verktakastarfsemi og helluframleiðslu.
    Það ár hófst framleiðsla á steyptum húseiningum sem í gegnum árin hefur þróast mikið, framleiðslan byrjaði í 1.100 fermetrum og er í dag með margvíslega framleiðslu á forsteyptum einingum og rörum í rúmlega 9.000 fermetrum.
    Í framhaldi af kaupum á Loftorku Borgarnesi ehf. hélt Steypustöðin áfram að styrkja innviði sína með kaupum á Alexander Ólafssyni ehf. haustið 2017 og í upphafi árs 2018 Tak Malbik ehf. sem hafa verið aðal efnisbirgjar Steypustöðvarinnar síðustu árin, auk þess sem þessi fyrirtæki selja margs konar steinefni á markaði og eru í verktöku fyrir Vegagerðina og jarðvinnuverktaka í steinefnavinnslu.
    Með kaupum á þessum efnisvinnslufyrirtækjum sem verða sameinuð í eitt fyrirtæki, verður til stærsta efnisvinnslufyrirtæki landsins. Sama gildir um steinefnaframleiðslu og steypuframleiðslu, kröfur aukast stöðugt á öllum sviðum og því mikilvægt að ráða yfir tækjum og tækni til að geta mætt þeim kröfum.

  • 2012
    Samantekt úr Ísland 2010, atvinnuhættir og menning
  • 1992
    Samantekt úr Ísland 1990, atvinnuhættir og menning
    [acf_repeater_gallery repeater="company_timeline" gallery="section_images"]

Stjórn

Stjórnendur

Steypustöðin ehf.

Malarhöfða 10
110 Reykjavík
4400400

Atvinnugreinar

Upplýsingar

1 / ?

Lesa bókina