Árið 2025 hélt Stjörnumálun áfram að þróast sem öflugt málningar‑ og viðhaldsfyrirtæki. Verkefnin voru fjölbreytt og beindust að fjölmörgum viðskiptahópum, þar á meðal fyrirtækjum, húsfélögum og opinberum aðilum. Í allri starfsemi var lögð rík áhersla á fagmennsku, gæðastarf og góða verkferla, auk þess sem fyrirtækið vann áfram náið með öðrum iðnaðarmönnum þegar verkefnin kölluðu á heildarlausnir. Sveigjanlegur starfsmannafjöldi gerði Stjörnumálun kleift að sinna mörgum verkefnum samhliða á skilvirkan og öruggan hátt.
Árið 2024 einkenndist af aukningu í verkefnum og áframhaldandi vexti. Stjörnumálun tók að sér krefjandi viðhalds‑ og málningarverkefni af ýmsum stærðum, allt frá smærri endurbótum til umfangsmikils fasteignaviðhalds í samstarfi við aðra iðnaðarmenn. Fyrirtækið efldi þjónustu sína frekar, þar á meðal í háþrýstiþvotti og yfirborðshreinsun. Tækjakosturinn var einnig styrktur með vinnulyftum, föstum vinnupöllum og fjórum þjónustubílum sem tryggðu skilvirka framkvæmd á öllum verkstöðum.
Árið 2023 hélt Stjörnumálun ehf. áfram að styrkja stöðu sína sem traustur þjónustuaðili í málningar‑ og fasteignaviðhaldi. Félagið sinnti fjölbreyttum verkefnum fyrir fyrirtæki, húsfélög, einstaklinga og stofnanir, og nýtti til þess áratuga reynslu starfsfólks og öflugan tækjakost. Á þessum tíma voru regluleg utan‑ og innanhússverkefni meginhluti starfseminnar, þar sem fagmennska og gæðavinna voru ávallt í forgangi.
Stjörnumálum ehf. var stofnað árið 2007 af Ívari Þór Hilmarssyni en hann er jafnframt núverandi eigandi. Ívar er málarameistari og hlaut meistararéttindi í faginu árið 2009. Í upphafi sinnti Stjörnumálun ehf. eingöngu húsamálun en fyrirtækið sinnir í dag alhliða viðhaldi fasteigna. Stjörnumálun ehf. er framsækið og stöndugt fyrirtæki, sem getur tekist á við fjölbreytt og krefjandi verkefni hvort sem þau eru stór eða lítil.
Starfsemin
Fyrirtækið býr að langri reynslu af alhliða viðhaldsvinnu og getur gert tilboð í krefjandi viðhaldsverkefni í samstarfi við aðra fagverktaka, t.d. smiði, múrara, rafvirkja og pípara. Fyrirtækið er vel búið tækjum og á eigið lagerhúsnæði, nokkra þjónustubíla, fjölmargar vinnulyftur og mikið magn af vinnupöllum fyrir stærri útiverk ásamt öllum þeim verkfærum og tækjum sem þarf í öll verk stór sem smá.
Verkefnin
Stjörnumálun ehf. leggur áherslu á að nota viðurkennd og traust viðhaldsefni frá ábyrgum framleiðendum. Fyrirtækið hefur unnið fyrir ýmis fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök, húsfélög og einstaklinga. Verkefnalistinn er fjölbreyttur sem sýnir að fyrirtækið er vel samkeppnishæft á verktakamarkaði.
Starfsmenn og aðsetur
Hjá Stjörnumálun ehf. starfa á bilinu 50-70 starfsmenn, með fjölbreytta reynslu og menntun, eftir því hver verkefnastaðan er. Mikil áhersla er lögð á góðan starfsanda og hópefli, t.d. veglegar árshátíðir, en margir starfsmenn fyrirtækisins eru með allt að 10 ára starfaldur að baki.
Skrifstofur Stjörnumálunar ehf. eru að Bíldshöfða 14, 110 Reykjavík, en lager fyrirtækisins er að Álhellu 13, 221 Hafnarfirði. Unnið er að byggingu nýrra höfuðstöðva að Einhellu 11,
221 Hafnarfirði. Vefsíða: www.stjornumalun.is
Stjörnumálun
Atvinnugreinar
Upplýsingar
Lesa bókina