Sýslumaðurinn á Austurlandi

2022

Saga sýslumanna er samofin sögu samfélags og þjóðar á Íslandi og embættin teljast rótgrónar þjónustustofnanir ríkisins í héruðum landsins. Í dag eru sýslumannsembættin níu talsins og starfrækja 27 starfsstöðvar um land allt. Embættin hafa á að skipa reynslumiklu og fjölhæfu starfsfólki sem nú telur um 240 manns. Sýslumanna er fyrst getið hérlendis í handriti að sáttmála sem Íslendingar gerðu við Noregskonung á árunum 1262 til 1264. Síðar var sáttmálinn nefndur Gamli sáttmáli, en með honum má segja að Íslendingar hafi gerst þegnar Noregskonungs. Sýslumenn eru því elstu veraldlegu embættismenn sem enn starfa á Íslandi og hafa alla tíð verið mikilvægur hluti stjórnsýslunnar.

Hlutverk sýslumanna og verkefni

Sýslumannsembættin fara með framkvæmdavald ríkisins í héraði eftir því sem lög og reglur mæla fyrir um. Starfsfólk embættanna veitir borgurum, lögaðilum og hinu opinbera margháttaða þjónustu sem lýst er í lögum. Verkefnin teljast öll á sviði einkamálaréttar og opinberrar stjórnsýslu og heyra undir flest fagráðuneyti stjórnarráðsins. Sérstaða sýslumannsembættanna er því fólgin í fjölbreytileika verkefna sem hafa margþætta lagastoð.

Hlutverk sýslumanna hefur breyst í tímans rás. Verkefni á borð við dómsýslu, tollgæslu og löggæslu töldust lengst af til sýslumannsembættanna, en tilheyra nú öðrum stofnunum. Samhliða hafa mörg kjarnaverkefni sýslumanna vaxið að umfangi og kröfur um vandaða málsmeðferð einnig. Helstu verkefni sýslumanna nú snúa að barna- og fjölskylduréttarmálum, lögræðismálefnum, þinglýsingum, dánarbússkiptum, setu í óskiptu búi o.fl., fullnustugerðum á borð við fjárnám, nauðungarsölur, kyrrsetningu, lögbann, útburðargerðir o.fl., ökuréttindum, lögbókandagerðum, leyfisútgáfu svo sem rekstar- og tækifærileyfum, löggildingum vegna ýmissa starfsréttinda, sáttamiðlun í einkamálum, útgáfu ýmissa vottorða og fleira. Innheimta opinberra gjalda er mikilvægt viðfangsefni átta sýslumannsembætta. Umboð Tryggingastofnunar og Sjúkratrygginga eru mörg og eru því vistuð hjá embættunum.

Sérverkefni sýslumanna eru nú 35 talsins. Um er að ræða sérsök verkefni sem einstök sýslumannsembætti sinna á landsvísu og spanna mikilvæg og fjölbreytt opinber verkefni, eins og nánar má sjá í umfjöllun um sérhvert embætti.

Framtíðarsýn

Sýslumenn hafa mótað framtíðarsýn þar sem áhersla er lögð á skýrar og aðgengilegar upplýsingar um þjónustu embættanna. Með auknu aðgengi landsmanna að þjónustu sýslumanna, svo sem rafrænum umsóknum og notendavænni stafrænni umgjörð, er stefnt að eflingu starfseminnar og framúrskarandi þjónustustigi í samræmi við lög og reglur. Fyrirsjáanlegt er að þjónusta embættanna verður í sífellt minni mæli háð viðveru einstaklinga og aukið aðgengi landsmanna telst vera langtímamarkmið. Að sama skapi mun landfræðileg staðsetning vinnslu, greiningar og þjónustu hafa æ minni minni þýðingu. Gildir það jafnt um sérfræðilegt vinnuframlag eða hvort verkefni eru unnin á höfuðborgarsvæði eða landsbyggðinni. Sýslumannsembættin taka því fullan þátt í þróuninni og keppast við að svara kalli tímans.

Sýslumaðurinn á Austurlandi

Embætti sýslumannsins á Austurlandi tók til starfa 1. janúar 2015 með því að embætti sýslumannanna á Eskifirði og Seyðisfirði voru sameinuð.  Embætti Sýslumannsins á Austurlandi er með skrifstofur á Egilsstöðum, Eskifirði, Vopnafirði og Seyðisfirði.

Lögfræðingar embættisins eru þrír. Aðrir starfsmenn eru níu í 7,82 stöðugildum. Samtals eru stöðugildi því 10.82. Nokkuð er um að starfsmenn komi saman sér til skemmtunar.

Miklar vonir eru nú bundnar við rafrænar lausnir og hafa sýslumannsembættin verið í samstarfi við Verkefnastofuna Island.is um þróun tölvulausna. Viðskipavinir leita helst þjónustu vegna vegabréfa, ökuskírteina og þinglýsinga. Vegna leyfamála veitinga- og gististaða er embættið í miklum samskiptum við umsækjendur, sveitarfélög og aðra umsagnaraðila.

Sameining embætta á Austurlandi telst hafa tekist vel og reynslan af fimm fyrstu árunum hefur verið jákvæð. Margt er þó óunnið. Hugmyndir eins og sameiginlegt þjónustuver, rafrænar þinglýsingar og fleiri á sviði rafrænna lausna eiga eftir að breyta tilvist embættanna umtalsvert. Eftir sem áður þarf að efla embættin og finna þeim fleiri verkefni og styrkja rekstrargrundvöll þeirra til framtíðar. Sýslumaður er Lárus Bjarnason.

Ísland, atvinnuhættir og menning

© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd