Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra

2022

Saga sýslumanna er samofin sögu samfélags og þjóðar á Íslandi og embættin teljast rótgrónar þjónustustofnanir ríkisins í héruðum landsins. Í dag eru sýslumannsembættin níu talsins og starfrækja 27 starfsstöðvar um land allt. Embættin hafa á að skipa reynslumiklu og fjölhæfu starfsfólki sem nú telur um 240 manns. Sýslumanna er fyrst getið hérlendis í handriti að sáttmála sem Íslendingar gerðu við Noregskonung á árunum 1262 til 1264. Síðar var sáttmálinn nefndur Gamli sáttmáli, en með honum má segja að Íslendingar hafi gerst þegnar Noregskonungs. Sýslumenn eru því elstu veraldlegu embættismenn sem enn starfa á Íslandi og hafa alla tíð verið mikilvægur hluti stjórnsýslunnar.

Hlutverk sýslumanna og verkefni

Sýslumannsembættin fara með framkvæmdavald ríkisins í héraði eftir því sem lög og reglur mæla fyrir um. Starfsfólk embættanna veitir borgurum, lögaðilum og hinu opinbera margháttaða þjónustu sem lýst er í lögum. Verkefnin teljast öll á sviði einkamálaréttar og opinberrar stjórnsýslu og heyra undir flest fagráðuneyti stjórnarráðsins. Sérstaða sýslumannsembættanna er því fólgin í fjölbreytileika verkefna sem hafa margþætta lagastoð.

Hlutverk sýslumanna hefur breyst í tímans rás. Verkefni á borð við dómsýslu, tollgæslu og löggæslu töldust lengst af til sýslumannsembættanna, en tilheyra nú öðrum stofnunum. Samhliða hafa mörg kjarnaverkefni sýslumanna vaxið að umfangi og kröfur um vandaða málsmeðferð einnig. Helstu verkefni sýslumanna nú snúa að barna- og fjölskylduréttarmálum, lögræðismálefnum, þinglýsingum, dánarbússkiptum, setu í óskiptu búi o.fl., fullnustugerðum á borð við fjárnám, nauðungarsölur, kyrrsetningu, lögbann, útburðargerðir o.fl., ökuréttindum, lögbókandagerðum, leyfisútgáfu svo sem rekstar- og tækifærileyfum, löggildingum vegna ýmissa starfsréttinda, sáttamiðlun í einkamálum, útgáfu ýmissa vottorða og fleira. Innheimta opinberra gjalda er mikilvægt viðfangsefni átta sýslumannsembætta. Umboð Tryggingastofnunar og Sjúkratrygginga eru mörg og eru því vistuð hjá embættunum.

Sérverkefni sýslumanna eru nú 35 talsins. Um er að ræða sérsök verkefni sem einstök sýslumannsembætti sinna á landsvísu og spanna mikilvæg og fjölbreytt opinber verkefni, eins og nánar má sjá í umfjöllun um sérhvert embætti.

Framtíðarsýn

Sýslumenn hafa mótað framtíðarsýn þar sem áhersla er lögð á skýrar og aðgengilegar upplýsingar um þjónustu embættanna. Með auknu aðgengi landsmanna að þjónustu sýslumanna, svo sem rafrænum umsóknum og notendavænni stafrænni umgjörð, er stefnt að eflingu starfseminnar og framúrskarandi þjónustustigi í samræmi við lög og reglur. Fyrirsjáanlegt er að þjónusta embættanna verður í sífellt minni mæli háð viðveru einstaklinga og aukið aðgengi landsmanna telst vera langtímamarkmið. Að sama skapi mun landfræðileg staðsetning vinnslu, greiningar og þjónustu hafa æ minni minni þýðingu. Gildir það jafnt um sérfræðilegt vinnuframlag eða hvort verkefni eru unnin á höfuðborgarsvæði eða landsbyggðinni. Sýslumannsembættin taka því fullan þátt í þróuninni og keppast við að svara kalli tímans.

Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra

Umdæmi Sýslumannsins á Norðurlandi eystra spannar Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslur. Íbúar eru ríflega 30.000 og eru búsettir í 13 sveitarfélögum frá Fjallabyggð í vestri að Langanesbyggð í austri. Öflugt og fjölbreytt atvinnulíf einkennir samfélögin í umdæminu. Embættið hefur nú á að skipa 26 reyndum og hæfum starfsmönnum í 25,2 stöðugildum og starfrækir fimm skrifstofur. Á Akureyri starfa fjórtán starfsmenn, á Húsavík sex starfsmenn, á Siglufirði eru fimm starfsmenn og á Þórshöfn er einn starfsmaður. Á Dalvík er reglubundin viðvera löglærðs fulltrúa. Almenn afgreiðsla er aðgengileg á öllum starfsstöðvum en sérstök málsmeðferð og vinnsla byggir á innri sérhæfingu á milli skrifstofa. Auk kjarnaverkefna sýslumanna og þjónustu vegna Tryggingastofnunar og Sjúkratrygginga sinnir embættið fjölbreyttum sérverkefnum, en þau varða rekstur bótanefndar, lögmannsleyfi, sanngirnisbætur, trúfélög- og lífsskoðunarfélög, kvaðaarf, öskudreifingu og flutning líka. Þau eru öll staðsett á Siglufirði utan málaskrárverkefnis í fjölskyldumálum á landsvísu sem unnið er að á Þórshöfn. Þá eru  útibú Vinnueftirlitsins og Persónuverndar til húsa á skrifstofu embættisins á Húsavík og sérfræðingur í málefnum barna á Akureyri. Sýslumaður á Norðurlandi eystra er Svavar Pálsson.

Ísland, atvinnuhættir og menning

© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd