Tengi

2022

Tengi ehf. er leiðandi fyrirtæki í innflutningi og sölu á hreinlætistækjum og pípulagningaefni. Fyrirtækið er starfrækt á 2 stöðum, í 3000 fm húsnæði að Smiðjuvegi 76 í Kópavogi annars vegar og í 600 fm húsnæði að Baldursnesi 6 á Akureyri hins vegar. Frá upphafi hefur verið lögð mikil áhersla á gott samstarf með hönnuðum, arkitektum, pípulagningamönnum, byggingaverktökum og öðrum fagmönnum í byggingariðnaðinum ásamt hinum almenna viðskiptavini. Markmið Tengis hafa frá byrjun verið að bjóða góða og viðurkennda vöru á hagstæðu verði frá þekktum framleiðendum þar sem byggt hefur verið áralangt og traust samband. Hlutverk Tengis er að auðvelda viðskiptavinum val á gæðavörum á sviði hreinlætistækja og lagnaefnis, sem studdar eru af framúrskarandi þjónustu. Meðal þekktra vörumerkja hjá fyrirtækinu má nefna blöndunartæki frá Mora, Vola, Dornbracht og Hansa, hreinlætistæki frá Ifö, Geberit og Alape, gólfniðurföll frá Unidrain og Kessel, lagnaefni frá Uponor og dælur frá Grundfos. Reksturinn í gegnum árin hefur fylgt efnahagssveiflum og framkvæmdum á byggingamarkaðnum eins og gefur að skilja. Mikill uppgangur var fram að efnahagshruninu 2008, þá tóku við 3 erfið ár, en sem betur fer var félagið vel statt til að takast á við þær hremmingar. Síðan hefur leiðin legið upp á við, byggingaframkvæmdir hafa aukist ár frá ári, hótelverkefni sprottið upp víðs vegar um landið og íbúðabyggingar stóraukist. Árið 2020 hefur verið merkilegt ár svo ekki sé meira sagt. Kórónuveiran hefur haft mikil áhrif á heimsbyggðina og þar með talið Ísland. Áhrifin hérlendis hafa verið lamandi fyrir ferðaþjónustuna, en framkvæmdagleði fyrir fólk sem hefur ákveðið að fjárfesta í nýju húsnæði eða gera endurbætur á núverandi húsnæði í stað þess að ferðast til útlanda. Tengi hefur í gegnum árin náð að selja í mörg krefjandi og gefandi verkefni, stór sem smá á þessum árum sem of langt er að telja upp hér. Hjá fyrirtækinu starfa í dag 43 starfsmenn.

Sagan
Fyrirtækið Tengi var stofnað í desember 1981 af hjónunum Sigurjóni G. Sigurjónssyni og Önnu Ásgeirsdóttur. Reksturinn var fyrstu árin sem aukabúgrein, en óx svo fiskur um hrygg og það má segja að þáttaskil hafi orðið í rekstrinum þegar Tengi hóf innflutning á Mora blöndunartækjum árið 1985. Þórir Sigurgeirsson, tengdasonur hjónanna bættist við skömmu síðar og störfuðu þau þrjú við reksturinn framan af. Tengi er fjölskyldufyrirtæki og hefur starfsemi fyrirtækisins alltaf verið í Kópavogi. Eins og í mörgum góðum fyrirtækjum byrjaði reksturinn smátt, var fyrstu árin í bílskúrnum, en árið 1988 var tekin sú ákvörðun að flytja að Nýbýlaveg 18 þar sem fyrirtækið var í 7 ár. Vöxturinn var alltaf upp á við á hverju ári, fleiri starfsmenn bættust við og ný vörumerki til að styrkja flóruna sem fyrir var og ekki leið á löngu þar til húsnæðið var orðið alltof lítið og tími til kominn að færa sig. Árið 1995 var húseignin Smiðjuvegur 11a keypt og þar hófst annar kafli í sögu Tengis og fyrirtækið dafnaði vel. Eftir 10 farsæl ár var ákveðið að ráðast í að byggja nýtt og glæsilegt húsnæði að Smiðjuvegi 76 og var starfsemin flutt þangað 25. júlí 2005. Haft var að leiðarljósi að húsið væri sýningarhús fyrir þær vörur sem Tengi er með í sölu og allar lagnir í húsinu væru sem sýnilegastar. Sigurjón náði því miður ekki að sjá þennan draum sinn rætast, en hann féll frá í maí 2005. Starfsmenn Tengis á þessum tíma voru 22. Í janúar árið 2007 var reksturinn útvíkkaður með opnun nýrrar verslunar að Baldursnesi 6 á Akureyri og hefur sá rekstur gjörbreytt aðstöðu fyrirtækisins á því svæði og verið mjög vaxandi. Þar eru nú starfandi 5 starfsmenn. Árið 2021 er áætlað að opna nýja og glæsilega verslun á Selfossi. Tengi hefur verið svo lánsamt að hafa á að skipa frábæru starfsfólki. Margir þeirra eru með langa starfsreynslu og hafa gríðarlega reynslu og þekkingu á hreinlætistækjum og pípulagningaefnum. Tengi mun áfram leitast eftir því að vera leiðandi fyrirtæki og framtíðarsýnin er að vera fyrsti valkostur þeirra viðskiptavina sem kunna að meta gæðavörur og framúrskarandi þjónustu.

Stefna Tengis
Pössum upp á það sem við höfum, fylgjumst með því sem er að gerast, sækjum varlega og yfirvegað fram, byggjum á góðum vörum og framúrskarandi þjónustu, og styrkjum samheldni og hugarfar hópsins. Framkvæmdastjóri Tengis er Þórir Sigurgeirsson og stjórnarformaður er Anna Ásgeirsdóttir. Allar upplýsingar um Tengi má finna á: www.tengi.is

Ísland, atvinnuhættir og menning

© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd