Þarfaþing hf. var stofnað árið 1993 upp úr viðhaldsdeild Hagkaupa hf. og voru stofnendur þess: Hagkaup hf., Bónus sf., Miklatorg sf., Vöruveltan hf., Þyrping hf., Kristinn Orri Erlendsson, Ólafur G. Guðjónsson, Sverrir Gunnarsson og Guðbrandur Benediktsson. Núverandi eigendur eru Eggert Elfar Jónsson, framkvæmdastjóri og Einar Hafsteinsson, verkstjóri. Þarfaþing var fyrst til húsa í Síðumúla 34 í Reykjavík, flutti þaðan árið 1999 í Kjalarvog 5 í Reykjavík og árið 2008 var starfsemin flutt í eigið húsnæði að Drangahrauni 14 í Hafnarfirði og þar er fyrirtækið staðsett í dag. www.tharfathing.is
Tilgangur félagsins og starfsemi
Tilgangurinn með stofnun félagsins var að þjónusta Hagkaup og tengd fyrirtæki með allt sem sneri að viðhaldi.
Starfsemi félagsins hefur tekið talsverðum breytingum í tímans rás frá því að vera eingöngu í að þjónusta fyrirtæki í smærri verkefnum í það að taka að sér alverktöku í stórum verkefnum á útboðsmarkaði fyrir fyrirtæki og stofnanir. Jafnframt er félagið með eigin verkefni, að byggja og selja íbúðarhúsnæði.
Birgjar
Aðalbirgjar Þarfaþings eru flestir innlendir en Þarfaþing flytur að hluta til sjálft inn innréttingar og annað efni beint frá framleiðendum.
Starfsfólk
Meðalfjöldi starfsmanna undanfarin ár hefur verið í kringum 15 fastráðnir starfsmenn og hefur svo verið alllengi. Mikið er þó byggt á undirverktökum sem flestir hafa komið að verkefnum félagsins til margra ára.
Verkefnastaða
Verkefnastaða er góð um þessar mundir sem og fjárhagsstaða félagsins og við okkur blasir björt framtíð. Ársvelta félagsins hefur farið vaxandi frá ári til árs og árið 2019 nam veltan
2,1 milljarði króna. En auðvitað hafði hrunið 2008 og COVID-19 árið 2020 sín áhrif. Félagið er sterkt og stóð þessi áföll af sér. Félagið hefur átt auðvelt með að aðlaga sig hratt að þessum breytingum þegar þær eiga sér stað, minnkað hratt og stækkað hratt þegar á þarf að halda.
Afhent á umsömdum tíma
Starfsfólk Þarfaþings leggur allan sinn metnað í hvert verk, því að tími viðskiptavina okkar er dýrmætur. Þess vegna leggjum við hjá Þarfaþingi höfuðáherslu á að áætlanir okkar standist og að skila verkum okkar á umsömdum tíma.
Framúrskarandi fyrirtæki
Þarfaþing hefur hlotið viðurkenningu frá Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki s.l. 9 ár eða frá árinu 2012 til 2021. Þá viðurkenningu hljóta aðeins fyrirtæki sem standast styrkleikamat Creditinfo og uppfylla ströng skilyrði við greiningu þess.
Áralöng reynsla
Eins og áður segir þá hóf félagið starfsemi árið 1993 aðallega sem viðhaldsþjónusta fyrir Hagkaup og tengd félög. Með nýju fólki breytast áherslur og árið 1998 fór félagið að taka þátt í almennum útboðsmarkaði. Þetta var stórt skref að stíga á sínum tíma. Í framhaldi af því fóru verkefnin stækkandi ár frá ári og 2001 var stigið enn eitt skref og reisti félagið þá 5 eininga raðhús í Grafarholti og svo var ráðist í byggingu fjölbýlishúss í Urriðaholti árið 2015 og því næst reist hvert fjölbýlishúsið á fætur öðru ásamt þeim útboðsverkefnum sem félagið hreppir hverju sinni sem eru fjölmörg í gegnum árin.
Öflugir undirverktakar
Í gegnum tíðina hafa að stórum hluta sömu undirverktakarnir unnið fyrir Þarfaþing. Þetta er fólk sem við treystum og höfum myndað öflugt samband við.
TRAUST – GÆÐI – ÁREIÐANLEIKI
© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd