Vélaverkstæði Hjartar Eiríkssonar á Hvammstanga var stofnað árið 1948. Fyrst um sinn rak Hjörtur verkstæðið einn en fljótlega hóf bróðir hans, Sigurður, störf hjá honum og varð síðar meðeigandi að verkstæðinu. Hjörtur lést árið 1988 og hefur sonur hans, Hilmar, séð um reksturinn síðan. Sigurður lét af störfum sökum aldurs í kringum árið 2000 og seldi Hilmari hlut sinn skömmu síðar.
Þjónusta í yfir 70 ár
Hjörtur reisti 100 fm húsnæði undir starfsemina við íbúðarhús sitt, Valhöll, að Brekkugötu 8 stofnárið 1948. Keyptur var herskáli frá Reykjum í Hrútafirði og undir hann var verkstæðið byggt á einni hæð en skálinn sjálfur myndaði aðra hæðina með bogadregnu þaki. Er húsið í daglegu tali kallað Bragginn og er enn í dag kennileiti á Hvammstanga. Þar fór starfsemin fram til ársins 1989 þegar núverandi húsnæði við Búland var keypt. Er það alls um 525 fm og hefur Vélaverkstæðið yfir að ráða um 400 fm af því rými en einnig er Réttinga og sprautuverkstæði Guðmundar Jóhannessonar rekið í húsnæðinu. Vélaverkstæðið hefur frá stofnun mestmegnis sinnt öllum almennum bíla-, báta- og búvélaviðgerðum. Á fyrstu starfsárunum tók það einnig að sér ýmiss verkefni auk viðgerða á bifreiðum og tækjum. Til dæmis var töluverð vinna við pípulagnir hjá fyrirtækinu á þeim tíma sem verið var að skipta olíukyndingu út fyrir rafmagnskyndingu í íbúðarhúsum á Hvammstanga og nágrannasveitum. Í kringum 1990 var opnuð í Búlandi 3 vélsmiðja sem sinnir nýsmíði, svo sem innréttingar, t.d. í hesthús og fyrirtæki úr áli, rústfríu stáli og járni, hlið o.þ.h. sem og önnur tilfallandi smíðaverkefni.
Ávallt hefur verið lagt kapp á að þjónusta viðskiptavini sem best með hagkvæmum lausnum og samstarfi við aðra þjónustuaðila. Gott dæmi um það er viðgerðabíll Vélaverkstæðisins sem hefur verið haldið úti í áratugi. Bíllinn fer um sveitir og á milli bæja og gerir við landbúnaðartæki en dýrt og kostnaðarsamt getur verið fyrir bændur og rekstraraðila fyrirtækja að koma biluðum tækjum til viðgerðar um langan veg. Í meira en tvo áratugi hefur útibú Frumherja verið staðsett á Vélaverkstæðinu. Koma skoðunarmenn tvo daga í senn tíu sinnum yfir árið til að sinna aðalskoðun bifreiða. Hvort tveggja hefur mælst afar vel fyrir.
Starfsmenn og aðsetur
Starfsmönnum fyrirtækisins hefur fjölgað jafn og þétt með auknum umsvifum og meira þjónustuframboði. Fyrstu árin störfuðu að jafnaði 2-4 starfsmenn við Vélaverkstæðið. Um 1965 hóf Hilmar Hjartarson núverandi eigandi störf hjá fyrirtækinu. Þegar húsnæðið að Búlandi 1 var keypt og starfsemin flutt þangað fjölgaði starfsmönnum og voru þá 6 starfandi við fyrirtækið. Í dag eru 7 fastráðnir starfsmenn hjá Vélaverkstæðinu og er það með stærri einkareknu vinnustöðunum í Húnaþingi vestra. Hjá Vélaverkstæðinu starfa Hilmar Hjartarson eigandi, Jóhannes Jóhannesson vélvirki, Sveinn Ingi Bragason bifvélavirki, Myrkvi Þór Viggósson bifvélavirki, Friðbjörn Þorgrímsson, Ævar Smári Marteinsson og Jón Marel Magnússon.
© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd