Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur

  • 2022
    Samantekt úr Ísland 2020, atvinnuhættir og menning
    [acf_repeater_gallery repeater="company_timeline" gallery="section_images"]

    Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur var stofnað 27. maí 1931. Þann dag setti Hannibal Valdimarsson, sem var þá kennari í Súðavík (1929-1931), fund með verkafólki í Bolungarvík og úr varð stofnun félags til að berjast fyrir rétti launafólks. Auk vinnu við kennslu og ýmis önnur störf vann Hannibal hjá félaginu og varð síðar mjög atkvæðamikill forystumaður í verkalýðshreyfingunni og í stjórnmálum. Hann var meðal annars formaður Verkalýðsfélagsins Baldurs á Ísafirði 1932-1939, bæjarfulltrúi á Ísafirði 1933-1949, forseti Alþýðusambands Vestfjarða 1934-1953 og forseti Alþýðusambands Íslands 1954-1971. Stofnendur Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur voru skráðir 46, allt verkafólk úr Bolungarvík. Upphaflegi tilgangurinn með stofnun VSB var að ná samningum við vinnuveitendur um að það kaup sem greitt var á þessum tíma, gilti til 1. apríl 1932. Fyrsti formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur var Guðjón Bjarnason. VSB átti sér þó í raun lengri sögu því að forveri þess var Verkalýðsfélag Bolungarvíkur, sem stofnað var 8. október 1926. Stofnendur þess félags voru 54 karlar og 24 konur, allt verkafólk. Það félag var hinsvegar lagt niður þann 14. nóvember 1928. Þetta var þó ekki fyrsta félagið sem verkamenn í Bolungarvík stofnuðu því þann 26. febrúar árið 1917 var stofnað verkalýðsfélag í Bolungarvík. Ekki varð það þó langlíft og náði ekki að verða eins árs. Enn eitt félagið var stofnað þann 17. nóvember 1927. Það var sjómannafélag og fékk það nafnið Röst. Þetta félag leið undir lok en segja má að það hafi orðið að sjómannadeild innan Verkalýðsfélagsins þann 9. febrúar 1937.

    Margar orrustur
    Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur hefur marga hildi háð til bættra kjara fyrir alþýðuna og teljast sumar orrustur þess til sögulegra viðburða. Fyrsti sigurinn vannst þegar félagið fékk viðurkenningu sem samningsaðili fyrir hönd verkamanna og margir sigrar hafa unnist síðan.

    Í eigið húsnæði
    Félagið keypti hús sitt, sem það á enn í dag, af Sparisjóði Bolungarvíkur árið 1972 og hélt sinn fyrsta stjórnarfund í eigin húsi þann 3. janúar 1973.

    Minna en króna á tímann
    Mörg baráttumál komu til kasta VSB á fyrstu árum félagsins. Þar var meðal annars tillaga sem kom fram á fundi 19. janúar 1932 um um að reynt yrði að semja um að kaup verkafólks yrði eftirfarandi: Dagkaup karla verði frá kl. 7 árdegis til kl. 6 síðdegis, 80 aurar og 1 króna frá kl. 6 síðdegis til kl. 10 síðdegis. Kaup kvenna verði 50 aurar á dagtíma og 70 aurar síðdegis. Helstu mál félagsins í dag eru kjara- og réttindamál hverskonar, endurmenntunarmál, velferðar- og menningarmál.

     

    Formenn félagsins í gegnum tíðina:
    1931-1942 Guðjón Bjarnason
    1942-1950 Jón Tímóteusson
    1951 og 1952 Ingimundur Stefánsson
    1953-1958 Páll Sólmundarson
    1958-1991 Karvel Steindór Pálmason
    1991-1998 Daði Guðmundsson
    1998-2000 Sigurður Ástvin Þorleifsson
    2001-2017 Lárus Benediktsson
    2017- Hrund Karlsdóttir fyrsta konan sem kjörin er formaður VSB

    Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur er aðili að Starfsgreinasambandi Íslands (SGS) og einnig að Sjómannasambandi Íslands og Alþýðusambandi Íslands

Stjórn

Stjórnendur

Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur

Hafnargötu 37
415 Bolungarvík
4567108

Atvinnugreinar

Upplýsingar

1 / ?

Lesa bókina