Verkfræðistofa Suðurnesja ehf. var stofnuð þann 2. febrúar 1980, starfsmenn voru þá aðeins 2 talsins. Stofnendur voru Guðmundur Björnsson, verkfræðingur, Kjartan Rafnsson, tæknifræðingur og verkfræðistofan Fjarhitun hf. Í dag er Verkfræðistofa Suðurnesja níunda stærsta verkfræðistofa landsins. Fyrst um sinn var stofan til húsa að Hafnargötu 32, Reykjanesbæ, síðan Hafnargötu 58 en flutti á Víkurbraut 13 (við Keflavíkurhöfn) fyrir 18 árum. Þá var starfsemin orðin það mikil að gamla húsnæðið var orðið allt of lítið. Kjartan Rafnsson var framkvæmdastjóri fyrstu tvö árin en þá tók Guðmundur Björnsson við og var framkvæmdastjóri til loka árs 1995. Brynjólfur Guðmundsson, verkfræðingur, tók við sem framkvæmdastjóri frá ársbyrjun 1996 og er enn.
Mannauður
Í dag starfa 17 manns á Verkfræðistofunni, með fjölbreytta menntun – verkfræðingar, tæknifræðingar með ýmiskonar sérhæfingu, byggingafræðingar, tækniteiknarar og iðnmeistarar. Jafnan hefur verið lögð áhersla á að ráða starfsfólk af Suðurnesjum og því hafa margir af þessu svæði með menntun á sviði verk- og tæknifræði slitið barnsskónum hjá Verkfræðistofunni. Starfsmenn hafa komið frá öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum. Eigendur eru nú sjö starfandi hluthafar.
Verkefnin
Verkefnin sem Verkfræðistofa Suðurnesja tekur að sér eru mjög fjölbreytt og hafa ávallt verið í gegnum tíðina. Stofan þjónustar jafnt sveitarfélögin á svæðinu, fyrirtæki og einstaklinga og sinnir öllum sviðum framkvæmda. Starfsmenn Verkfræðistofunnar hafa komið að uppbyggingu helstu mannvirkja á Suðurnesjum á þessum 40 árum. Uppbygging orkuveranna í Svartsengi og Reykjanesi, Bláa lónsins og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar eru á meðal þeirra stærstu. Einnig uppbyggingu leikskóla, grunnskóla, hafnar-, gatna- og umferðamannvirkja sveitarfélaganna á svæðinu. Þá má nefna dreifikerfi hitaveitu, vatnsveitu og frárennslis. Gönguleiðin sem liggur meðfram strandlengju Reykjanesbæjar ásamt aðliggjandi sjóvarnargörðum eru einnig gott dæmi um verk sem heppnaðist vel og Verkfræðistofan hannaði og stjórnaði.
Þróunin
Þeir sem lengst hafa starfað á Verkfræðistofunni hafa upplifað gríðarlega þróun í tækni- og tækjabúnaði sem skipt hefur sköpum fyrir starfsemina. Í upphafi voru allar teikningar til dæmis gerðar í höndunum en ekki tölvum eins og í dag. Landmælingar voru að minnsta kosti tveggja manna verk og tóku langan tíma en í dag eru mælitækin orðin þannig að einungis einn maður getur annast þær. Flygildi sér um hluta mælinga og stór hluti vinnunnar fer í raun fram innandyra. Í gegnum árin hefur ávallt verið lögð mikil áhersla á það innan stofunnar að fylgja þróun tækninnar og er hún vel tækjum og forritum búin.
Framtíðin
Framtíðarhorfur Verkfræðistofunnar eru góðar enda má segja að þær fari saman við þróun og uppbyggingu á Suðurnesjasvæðinu. Fá landsvæði á Íslandi eiga jafn góða möguleika til að vaxa og dafna og Suðurnesin. Flugvöllurinn og ferðaþjónustan eru í mikilli uppbyggingu. Þá getur iðnaður dafnað vel á þessu svæði ásamt grænni orkuöflun og áframhaldandi uppbyggingu á innviðum svo sem gatnagerð og hafnaraðstöðu. Þessu fylgir fólksfjölgun ásamt tilheyrandi uppbyggingu á þjónustu og menntastofnunum. Öll þessi þróun skapar tækifæri til vinnu fyrir verkfræðistofur.
Frá því að Creditinfo fór að útnefna framúrskarandi fyrirtæki landsins hefur Verkfræðistofa Suðurnesja ávallt verið í þeim hópi, einungis um 0,2% fyrirtækja á landinu öllu hafa náð því.
© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd