Verkhönnun er verkfræðistofa á sviði rafmagns, stofnuð árið 2007. Við sjáum um raflagna- og lýsingarhönnun, ráðgjöf, útboðsgögn og kostnaðaráætlanir, ljósa- og hússtjórnarkerfi og ráðgjöf fyrir gagnaver. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu, fagmennsku og lausnir sem virka. Katrínartún 4, 105 Reykjavík.
Eigendur, Sesselja Jónsdóttir, Magnús B. Þórðarson og Bjarnþór S. Harðarson.
Starfsfólk. Frá vinstri: Bjarnþór S. Harðarson, Ríkarður Jón Ragnarsson, Þórður K. Kristjánsson, Bryndís Elva Kjartansdóttir, Tinna Sigurðardóttir, Þórarinn Árni Pálsson, Sesselja Jónsdóttir, Birna Dís Ólafsdóttir, Kristinn Guðjónsson, Magnús B. Þórðarson og Halldór Þrastarson.
Starfsfólk bregður á leik í jólapeysum.
Saga
Rafmagnsverkfræðistofan Verkhönnun var stofnuð í janúar 2007 af Magnúsi Brynjólfi Þórðarsyni og Bjarnþóri Sigvarði Harðarsyni. Sesselja Jónsdóttir hóf störf árið 2012 og varð meðeigandi árið 2015. Magnús, Bjarnþór og Sesselja eru eigendur félagsins og sitja í stjórn þess. Magnús er framkvæmdastjóri.
Aðsetur
Verkhönnun var fyrst til húsa í Akralind 6 í Kópavogi á árunum 2007–2013 og síðan í Þórunnartúni 2 í Reykjavík. Árið 2019 flutti starfsemin í Katrínartún 4 þar sem hún er í dag.
Mannauður
Hjá Verkhönnun starfa 15 manns. Teymið er lítið og samhent og menntun og reynsla eru fjölbreytt. Þar starfa verkfræðingar, iðnfræðingur, raffræðingur, rafvirkjameistari, lýsingarráðgjafi, innanhússarkitekt, tækniteiknarar og viðskiptafræðingur. Margir hönnuðir og ráðgjafar Verkhönnunar hafa áður starfað sem iðnaðarmenn. Það gefur góða innsýn í framkvæmdaferlið og nýtist vel í samskiptum við verkkaupa og verktaka.
Þjónusta
Verkhönnun veitir verkfræðiráðgjöf á sviði rafmagns, frá hugmynd að rekstri:
Verkefni
Verkefnin eru af öllum stærðum, hérlendis og erlendis. Þau ná meðal annars til skrifstofu- og verslunarhúsnæðis, hótela, fjölbýlishúsa, hjúkrunarheimila, skóla og íþróttamannvirkja, baðlóna, flugskýla, kirkna og kennileita, rafstöðva og varaaflskerfa og hleðslulausna fyrir rafbíla. Viðskiptavinir eru einstaklingar, fasteignafélög, verktakar, sveitarfélög og ríki.
Verkhönnun hefur unnið í BIM frá árinu 2012 og hannar öll verk í þrívíðu líkani. Það auðveldar samræmingu milli hönnuða og dregur úr árekstrum og kostnaði á framkvæmdatíma.
Starfsmenn hafa einnig kennt námskeið í lýsingarhönnun hjá Rafiðnaðarskólanum og við Háskólann í Reykjavík.
Gildi og sérstaða
Starfið byggir á þremur gildum: mannlegri nálgun, sérfræðiþekkingu og lausnum sem virka. Stærð stofunnar er hluti af sérstöðunni. Viðskiptavinir eiga bein og persónuleg samskipti við stjórnendur og hönnuði. Á sama tíma býr stofan yfir getu og reynslu til að leysa stór og flókin verkefni á hagkvæman hátt.
Framtíðarsýn
Verkhönnun sér tækifæri í orkuskiptum, gagnaverum og snjallari byggingum. Stofan þróar stöðugt verklag sitt með hagkvæmni að leiðarljósi, bæði í framkvæmd og rekstri bygginga. Markmiðið er að vera eftirsóknarverður samstarfsaðili vegna gæða, persónulegrar þjónustu og fagmennsku, ekki vegna stærðar.

Íslensk fyrirtæki í sögu og samtíð
ISAT tengir saman sögu og samtíð íslenskra fyrirtækja og styður við öflugt atvinnulíf á Íslandi