Sveitarfélagið Vopnafjarðarhreppur kennir sig við samnefndan fjörð norðan við Héraðsflóa í N-Múlasýslu á Austurlandi. Sjálft örnefnið er dregið af Eyvindi Vopna einum af þremur landnámsmönnum Vopnafjarðar. Fjörðurinn er um 25 km langur og um 8-16 km breiður. Sunnan við hann gnæfa miklir fjallgarðar en þar eru Krossavíkurfjöllin hvað mest áberandi. Norðan við er láglendi sem hækkar upp á Sandvíkur- og Bakkaheiðar en eru þar nokkur há fjöll sem skera sig úr umhverfinu. Inn af firðinum ganga þrír dalir en þar er undirlendi hvað mest í Hofsárdal. Út í fjörðinn skagar Kolbeinstangi, langur og mjór, en þar stendur kauptúnið Vopnafjörður. Í sveitarfélaginu búa í dag um 660 manns. Aðalatvinnuvegir eru útgerð, fiskvinnsla, þjónusta og úrvinnsla landbúnaðarafurða auk hlunnindabúskapar.
Náttúra og útivist
Í Vopnafirði (Vopnafjörður er nafn sveitarfélagsins) er óspillt náttúra, með fjölbreyttu dýralífi ávallt innan seilingar. Í fagurgrænum dölunum er stundaður búskapur og upp á heiðunum lifa villt hreindýr, refir og rjúpur. Þar eru einnig gjöfular laxveiðiár á borð við Selá og Hofsá en ágætis veiðivötn er t. d. að finna upp á Fossheiði og víðar. Strandlengja Vopnafjarðar er mjög áhugaverð með sjávarbjörgum, dröngum og sérkennilegum klettamyndunum. Fuglalíf er mjög fjölskrúðugt hvarvetna sem litið er. Hvalir leggja stundum leið sína inn fjörðinn ásamt selum sem eiga það til að skríða upp í fjörur. Margar fallegar og áhugaverðar náttúruperlur eru í Vopnafirði og má þarf nefna Bjarnarey, utan Kollumúla, Sandvík, Skjólfjörur, Fuglabjarganes, Gljúfursá, Þverárgil og Tangasporð svo eitthvað sé nefnt. Skemmtilegar gönguleiðir er að finna víðsvegar á Vopnafirði og hafa verið gefin út svæðisbundin göngukort um leiðirnar.
Samgöngur og ferðaþjónusta
Allar leiðir frá Vopnafirði liggja um fjallendi. Aðalvegurinn liggur um nýjan (2011) þjóðveg í Vesturárdal, sem nær yfir 400 m hæð þar sem vegurinn tengist hringveginum. Einnig má velja leiðina um Hellisheiði eða velja Sandvíkurheiði og áfram með ströndinni til Húsavíkur. Fyrir þá sem kjósa að fara flugleiðina má geta þess að flogið er fimm daga vikunnar frá Akureyri til Vopnafjarðar og Þórshafnar. Fyrir ferðafólk sem kýs að gista á Vopnafirði skal bent á að þar er rekið hótel allt árið um kring auk þess má einnig komast í ósvikna bændagistingu víðs vegar um sveitina. Miðsvæðis í bænum er tjaldsvæði sem eingöngu er opið yfir sumartímann. Sundlaug Vopnafjarðar er staðsett við árbakkann í Selárdal og er á margan hátt merkilegt mannvirki sem vert er að heimsækja.
Mannlíf og menning
Vopnafjörður hefur verið verslunarstaður frá tímum einokunarinnar á 17. og 18. öld. Við upphaf 19. aldar hóf danska verslunarfélagið Örum & Wulff starfsemi í plássinu og í því skyni voru byggð nokkur falleg hús sem enn setja áberandi svip á umhverfið. Eitt þeirra er svonefndur Kaupvangur sem reist var árið 1882 af Fredrik Bald, byggingameistara Alþingishússins. Árið 2005 gekk húsnæðið í gegnum allsherjar yfirhalningu og því komið upprunalegt horf. Í dag er Kaupvangur einhver mesta bæjarprýði Vopnafjarðarbæjar og þjónar alls kyns menningartengdu hlutverki. Í Vopnafjarðarhreppi er fjölbreytt og öflugt félagsstarf og má þar nefna Slysavarnardeildina Sjöfn, Hestamannafélagið Glófaxa, Ungmennafélagið Einherja, Björgunarsveitina Vopna, Kvenfélagið Lindina og einnig er öflugt kórastarf. Frábær níu holu golfvöllur er starfræktur af Golfklúbbi Vopnafjarðar. Í Hofsárdal, stendur gamli sveitabærinn Bustarfell, sem er einn af elstu og best varðveittu bæjum sinnar tegundar á landinu, þar má finna athyglisvert og lifandi minjasafn. Í Bustarfelli hefur búskapur haldist óslitinn innan sömu fjölskyldunnar síðan 1532.
Allar nánari upplýsingar má nálgast inn á vefsíðu sveitarfélagsins www.vopnafjardarhreppur.is.
© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd