Vörumiðlun ehf.

2022

Vörumiðlun ehf. á sér langa og farsæla sögu. Fyrirtækið varð til við sameiningu Vöruflutninga Magnúsar Svavarssonar og vöruflutningadeildar Kaupfélags Skagfirðinga árið 1996, en saman búa fyrirtækin yfir áratugareynslu af vöruflutningum.

Sagan
Fyrirtækið hefur farið ört vaxandi á undanförnum árum. Árið 2004 voru flutningafyrirtækin Húnaleið á Skagaströnd og Tvisturinn á Blönduósi sameinuð Vörumiðlun. Árið 2006 var flutningadeild KVH á Hvammstanga seld Vörumiðlun og áramótin 2009-2010 kaupir Vörumiðlun flutningadeild KSH á Hólmavík. Vörumiðlun hóf akstur á Hellu og Hvolsvöll árið 2015 og Kirkjubæjarklaustur og Vík í Mýrdal árið 2016. Þá var gerður samningur við Smyril Line um akstur vagna á þeirra vegum, sem koma með Norrænu til Seyðisfjarðar, og þeirra skipum til Þorlákshafnar, vikulega allt árið um kring. Árið 2017 kaupir Vörumiðlun Fitjar-Flutninga ehf. og hóf akstur á Suðurnesjum og eru starfsstöðvar fyrirtækisins því orðnar sjö talsins. Þá sér Vörumiðlun um alla uppskipun og löndun í Sauðárkrókshöfn. Framkvæmdastjóri Vörumiðlunar er Magnús Svavarsson og stjórnarformaður er Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri, fyrirtækið er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga.

Höfuðstöðvar
Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Sauðárkróki en afgreiðslustaðir eru víðs vegar um landið.
Fastráðnir starfsmenn fyrirtækisins telja um 90, auk starfsmanna í löndun og ýmis konar íhlaupavinnu. Búseta starfsmanna er dreifð en tengist í flestum tilfellum þeim starfsstöðvum sem fyrirtækið er með.

Starfsemin
Vörumiðlun býður upp á daglegar ferðir á flestum sínum leiðum. Þær vörur sem koma á afgreiðslustöðvar Vörumiðlunar eru komnar í hendur viðtakanda daginn eftir. En Vörumiðlun er aðili að stóru flutningsneti, sem nær yfir land allt, í samvinnu við Samskip og Eimskip Flytjanda. Lögð er áhersla á að veita góða og örugga þjónustu á sanngjörnu verði. Góður og fjölbreyttur tækjakostur vegur þungt í að auka möguleika á hagkvæmum lausnum. Vörumiðlun hefur til margra ára annast föst verkefni við ýmis konar sérhæfða flutninga í tengslum við iðnað og matvælaframleiðslu. Til þess þurfa bílarnir að vera vel útbúnir kæli-, frystitækjum og lyftum. Áhersla er lögð á virkt gæðaeftirlit með Gámess-vottun. Þá má nefna fjölda starfsmanna sem búa yfir mikilli reynslu og sækja sér reglulega endurmenntun, meðal annars ADR-réttindi. Fyrirtækið hefur til umráða um 70 flutningabifreiðar af ýmsum stærðum og gerðum, auk vagna, lyftara og hjálparbúnaðar af ýmsu tagi.
Allir bílar fyrirtækisins eru nýir eða nýlegir og búnir mengunarvarnarbúnaði.

Ísland, atvinnuhættir og menning

© 2023 Sagaz ehf | Allur réttur áskilinn | Skilmálar & persónuvernd