Happdrætti Háskóla Íslands (HHÍ) er elsta happdrætti landsins, stofnað árið 1933. HHÍ býður upp á flokkahappdrætti, Happaþrennuna og Gullnámuna og leggur ríka áherslu á ábyrga spilun. Ágóði starfseminnar rennur til uppbyggingar og viðhalds húsnæðis Háskóla Íslands og kaupa á rannsóknar- og kennslutækjum.